114 GRIPLA verið undir mismun á sögðum og raunverulegum aldri bréfsins komið, hvort það verður einungis véfengt á grundvelli skriftar og stafsetningar ellegar hvort form og orðfæri hjálpar upp á sakirnar. í öðrum tilvikum getur verið um að ræða fyrirferðarminni falsanir, þar sem fáein orð hafa verið skafin út og önnur sett í staðinn (sbr. dæmi í Isl. original- dipl., bls. xxxviii), og enda þótt slíkar falsanir geti breytt efni bréfs í verulegum greinum, getur verið ómögulegt að benda á þær, ef frum- bréfið sjálft með fölsuninni er ekki varðveitt, heldur einungis upp- skriftir. í stuttu máli sagt er það samdóma álit undirritaðra, að ekkert girði fyrir að DI VI nr. 78A hafi að geyma texta lögmæts frumbréfs frá 1476 með óverulegum uppskriftarvillum, en á hinn bóginn ósannanlegt að um ófalsað skjal sé að ræða.