HERMANN PALSSON ORÐ VESTEINS Þótt Vésteinn Vésteinsson gegni býsna merkilegu hlutverki í Gísla sögu, þá eru honum Iögð orð í munn á einungis tveim stöðum í allri sögunni. í fyrra skiptið hagar svo til, að Gísli hefur sent húskarla sína tvo norður til Önundarfjarðar þeirra erinda að vara Véstein við og telja hann frá að koma í heimsókn að sinni, og þó eru þeir Gísli og Vésteinn virktarvinir og mágar. En Vésteinn hefur átt vingott við Ásgerði, bróðurkonu Gísla, og hefur komizt upp um kunnleika þeirra, svo að Vésteinn á fjandskap að mæta af afbrýði bónda hennar Þorkels, sem er bróðir Gísla og býr samtýnis honum í tvíbýli við Þorgrím, mág þeirra. Þorkell, Þorgrímur og seiðmaðurinn Þorgrímur nef eru þess albúnir að veita Vésteini ómilda móttöku: þeir hafa gert vandað spjót, mikið morðvopn, úr brotum óheillasverðsins Grásíðu. En sendimenn Gísla fara á mis við Véstein og ná honum ekki fyrr en hann er kominn suður um vatnaskil Gemlufallsheiðar. Þeir segja honum erindi sín og bera fram jartegn máli sínu til sönnunar. Svör Vésteins eru ekki samhljóða í tveimur varðveittum gerðum sögunnar, og er nokkur fróðleikur að bera þær saman: M 'Satt eitt segið þið,' segir hann, 'og myndi ég aftur hafa horfið, ef þið hefðuð hitt mig fyrr. En nú falla öll vötn til Dýrafjarðar, og mun ég þangað ríða, enda er ég þess fús. Austmenn skulu hverfa aftur. En þið stígið á skip,' segir Vésteinn, 'og segið Gísla og systur minni þangaðkomu mína.' 'Satt eitt segið þið,' kvað hann, 'og mundi ég aftur hafa horfið, ef þið hefðuð mig fyrr fundið. En nú falla vötn öll til Dýrafjarðar, og mun ég nú þangað ríða því að ég er fús að hitta mág minn og systur hefur mjög langt orðið funda í milli. En Austmenn skulu aftur hverfa. Þið skuluð hafa leið hina skemmstu, er þið eruð í göngu, og segið Gísla og systur minni þangað- komu mína. Ætla ég þar að koma að heilum mér.'