20 GRIPLA allhá embættislaun. Blöð verkamanna og samvinnumanna töldu, að árslaun, sem færu yfir 8000 krónur, bæru vott um siðleysi og spillingu. Þó munu bankastjórar og ráðherrar hafa haft talsvert hærri laun á þessum árum. En í fréttinni af kappreiðum í Bolabás í Morgunblaðinu, sem vitnað er í hér að framan, er örstutt viðbót, afmörkuð með litlu striki frá því sem áður er frá sagt: Vel á minnst. Á eftir kappreiðunum átti að sýna hestaat. Hlakk- aði fólk mikið til að sjá það og hafði þegar áður en seinasta hlaupi lauk valið sér staði í brekkunum þar í grennd. En atið misheppnaðist að mestu, og verði háð hestaat aftur, þá þarf að haga því á annan hátt en hér var gert. Eins og nærri má geta, hefur þessi dómur farið fyrir brjóstið á Daní- el Daníelssyni. En þó lætur hann kyrrt liggja um hálfs mánaðar skeið. Þegar Daníel hefur sótt í sig veðrið, hefur hann þetta að segja: Ýmsir af þeim herskáustu mönnum, sem viðstaddir voru hestaat- ið á Alþingishátíðinni á Þingvöllum 27. f.m., létu óánægju sína í ljósi yfir, að graðhestar þeir, sem þar var atið (svo), hefðu ekki bitist af nægri grimmd. í greinarstúf, er ég reit í Morgunblaðið skömmu fyrir hátíðina, gat ég þess, að ég myndi gæta þess við atið, að hestarnir hlytu sem allra minnstar skemmdir, en hins vegar vildi ég leitast við að sýna, hvernig friðsöm hestaat (svo) til forna myndu hafa farið fram. Hvernig mér hefir tekist að uppfylla það loforð má lengi deila um, því sitt sýnist hverjum um þetta sem annað, en ljós- myndir þær, er ýmsir ljósmyndarar tóku þar af atinu, sýna glöggt, hvernig það fór fram, og bera margar þær myndir með sér, að folarnir bitust, og eitt var víst, að þeir risu vel upp, en börðust ekki með afturfótunum, enda hefði það getað orðið ónotalegt fyrir þá menn, sem næst tróðust að girðingunni, sem folarnir voru í. Hinsvegar játa ég, að innan handar var fyrir mig að láta folana berjast og bítast af meiri grimmd en þeir gerðu. Slíkt má gerast upp á tvennan máta. Annar mátinn er sá að hafa hryssur í nánd við folana, en hinn er sá að keyra hestana fram með þar til gerð-