30 GRIPLA i millum laganna i halftunnur sem velbendtar skulu leverast til Kaupmannsens a Hofsös nu i Haust, ádur Skip þar Sigler. 4°. Vonum vier sameigenlega, þad Háloflega Collegium siáe oss Fatæka menn skadlausa fyrer vorar Reisur, Ervide, og ömak vid þesse befóludu Erende: Hvar til vid vonum, hr Syslumadurinn Sr Jon Jacobsson, og so effter billegheitum Recommender(e) oss. D(ie) 25 Augusti 1778 Höfn i Siglufyrde Jon Gudmundsson Gudvardur Eyriks Son Prestur til Hvanneyrar Syslumansens Sr: Jons Jacobs Sonar (Innsigli) fullmektugur frá Tungu i Fliötum Þorsteinn Jóns Son (Innsigli)39 Reppstiori i Hofn i Siglufyrde Guðmundur Magnus Son (Innsigli) Bonde i Holum i Austur-fliötum (Innsigli)40 Eins og fram kemur í skýrslunni, er bréf rentukammersins til Jóns Jakobssonar dagsett 5. júní 1778. Það bréf er að finna í skjalasafni Eyjafjarðarsýslu (í böggli II A 2) og raunar einnig í bréfabók rentu- kammers, en bréfabækur þess eru til í ljósriti í Þjóðskjalasafni. RANNSÓKNIR Á BLEIKSMÝRARDAL í bréfaskiptum rentukammersins og Jóns Jakobssonar sýslumanns tengjast Bleiksmýrardalur og hugmyndir um gnótt postulínsleirs mjög traustum böndum, og fer þá svo, að sýslumanni berst að eyrum saga um hestavíg endur fyrir löngu. Fyrir þeim, sem söguna segir, vakir það bersýnilega að skýra uppruna nafnsins Bleiksmýrardalur og kveða nið- ur þá kenningu, að nafnið standi í sambandi við hina göfugu bleikju, Guðvarður er víslega sá sami maður, sem bjó í Tungu í Stíflu a.m.k. 1799-1805 og dó 15. nóvember 1814, 88 ára. Jarða- og búendatal í Skagafjarðarsýslu, 4. hefti, Rvfk 1959, bls. 142. Sbr. og Manntal á íslandi 1801, Norður- og austuramt, Rvík 1980, bls. 177 (Tunga). Islands Journal rentukammers 4 nr. 563 (fylgiskjal). (Askja Rtk 39. 10 í Þjóð- skjalasafni). - Vafalaust hefur blýgrýtið (grafftið) í Siglufirði átt að tryggja blýanta- verksmiðju í Danmörku nægilegt hráefni. Nicolai Mohr varð ekki meira ágengt en svo í leit sinni að grafíti í Siglufirði, að hann fékk aðeins grafít í hálfan vettling. Forsög til en islandsk Naturhistorie, Kh. 1786, bls. 343-345. - Sbr. og Þorvaldur Thoroddsen, Land- frðissaga íslands III, Kh.T902, bls. 79-80.