POSTULÍNSGERÐ OG HESTAVÍG 33 kemur fyrir í fornum ritum í þeirri nafnmynd, sem enn tíðkast. Hannes Þorsteinsson þjóðskjalavörður virðist telja, að dalurinn hafi upphaf- lega heitið Blígsmýrardalr, en ekki verður séð, að hann styðji þá til- gátu sérstaklega sterkum rökum.46 í skjali frá 1508 (í handriti frá því um miðja 17. öld), þar sem Jón Arason prestur á Hrafnagili (síðar biskup) kærir óleyfilegan Iambarekstur á Bleiksmýrardal, kemur tvisv- ar fyrir hin torkennilega orðmynd Bleykssmydardal/Bleykzsmydar- dal.47 Mestar líkur eru til, að Bleiksmýrarnafnið sé upprunalegt, hvernig sem það svo er til komið í öndverðu, enda skiptir það höfuð- efni þessarar ritgerðar engu. Svo fór, að Jón Jakobsson sendi rentukammerinu í tvennu lagi skýrslur, sem varða Bleiksmýrardal og leit að bleikju þar, en þó býsna ólflcar. Hér verður fyrst birt skýrslan, sem hann sendi með seinna bréf- mu, en það er dagsett 11. nóvember 1779 og hljóðar svo: Her ved Jndsendes Underdanigst, meddelte Underretninger fra dem, som i fölge Höylovlig Collegii naadigste Pro Memoria de dato 24de Martii a.c. /:som ved min Underdanigste Pro Memoria af 6te Septembr(is) næstleden, om denne Affaire blev forglemt.7 beskikket vare, at undersöge, om Porcellain Jordart, paa Bleik- mýre-Dalen her i Sysselet . . . Hér er raunar ekkert nema venjulegt form embættisbréfa þessa tímaskeiðs á ferðinni, en annarlegt má það kallast, að bæði rentu- kammerið og sýslumaður skuli telja Bleiksmýrardal vera í Eyjafjarðar- sýslu. Hann er þó bæði fyrr og síðar talinn til Mngeyjarsýslu, þó að Hrafnagilskirkja og Munkaþverárklaustur (þ.e. konungur 1779) séu eigendur dalsins. Þá kemur hér fylgiskjalið með bréfinu: Epter Her Syslumans yfer Vadla-Syslu Sr Jons Jacobssonar skrif- legre Befaling nu þann 5ta Junii, Reistumm vier underskrifader til Bleiksmyrardals sem er ur bigd Hiedann48 þyngmanaleid, Ed- Árbók hins íslenzka fornleifafélags 1923, bls. 11. Hannes er þó ekki mjög harður á máktað sínum í þessu efni, aldrei þessu vant. íslenzkt fornbréfasafn VIII, bls 258 (á fyrri staðnum er þar ranglega tíunduð orð- myndin Bleiksmydardal). Steph. 62, bl. 14 v (ljósmynd í Árnastofnun í Reykjavfk). Á tyni staðnum er smydar raunar leiðrétt ofar línu í myrar (með unglegri rithendi), enda er "áleitt, að uppruni nafnsins felist í þessum orðmyndum bréfsins. I hdr. Hediann.