34 GRIPLA ur 5 mylur, þar til ad er vær biriudumm ad Leita, Effter þeirre Bleikiu sem þar skilde eiga ad finnast, leitudumm vier; Stung- umm og gröfumm Jórd J Giliumm, Gröfumm49 og Árbockumm, Stungumm Lyka til Hingad og Þangad, þar Lykast þotte, enn fundumm Eckert, Geingu 5. dægur Her til, I>vj vær yferförumm dalenn athugasamlega til og frá allann. og þar ad auke Ransók- udumm grandkunniger a Veige ockar til og frá Hvad gatumm. Enn vær fundumm þo Eckert nockurstadar af Bleikiu Leyr, edur Jardar art; a Bleiks Myrardal, Hófumm heldur aldrei Heirt Þeirrar Jardar tegundar þar Gieted. Til stadfestu a Þorerstodum d(ie) 12 Junii 1779. Sigurdur Gudmundsson Olafur Biornsson (Innsigli) (Innsigli) Arne Sigurdsson (Innsigli)50 Enginn vafi leikur á því, að bærinn 'Þorerstader' er Þórustaðir (stundum nefndir Þórisstaðir) í Kaupangssveit. Þar býr 1762 Sigurður Guðmundsson, þá sagður 34 ára. í skrá um ungmenni í Kaupangssókn 1771 er Árni Sigurðsson á Þórustöðum, þá sagður 13 ára, 'sonur Sig- urðar og Katrínar.' Sennilega er Árni Sigurðsson, sem skrifar undir skýrsluna, þá sonur Sigurðar Guðmundssonar á Þórustöðum, sem var hreppstjóri. Ólafur Björnsson, sennilega hinn sami og hér, er á Garðsá í skrá um ungmenni 1771, sagður 20 ára, 'sonur Björns og Málmfríðar'. í manntalsbók sýslumanns (sem tilgreinir ekki föðurnöfn gjaldenda) sést, að bóndinn á Þórustöðum heitir Sigurður, en á Garðsá Björn. Gera má fastlega ráð fyrir, að það séu feður Árna Sigurðssonar og 01- afs Björnssonar, sem eru þá líklega vinnumenn hjá feðrum sínum. Ól- afur Björnsson bjó síðar á Garðsá.51 Árni Sigurðsson fluttist síðar aust- ur í Þingeyjarsýslu og dó þar 14. ágúst 1816.52 Vandalaust á að vera að 49 Hér er á ferðinni nafnorðið gróf. B.V. 50 Bréfið ásamt skýrslunni er með innkomnum bréfum til rentukammersins. Islands Journal 5 nr. 157 (Askja Rtk 40. 3 í Pjóðskjalasafni). 51 Sóknarmannatal í Kaupangssókn, hafið 1785 (í Þjóðskjalasafni). 52 Þingeyingaskrá Konráðs Vilhjálmssonar, ljósrit í Þjóðskjalasafni. - Katrín, kona Sigurðar Guðmundssonar á Þórustöðum var einkabarn Árna lögréttumanns á Þórustöð-