POSTULÍNSGERÐ OG HESTAVÍG 37 Dette er effter Ældste og paalideligste mænds Underretning opskrevet d(ie) 13de Aug(usti) 1779. JJacobsen m.p.pria53 Það leynir sér ekki við lestur þessarar frásagnar, að greinilegt sam- band er milli hennar og þeirrar frásagnar Jóns Espólíns, sem birt er hér að framan (bls. 22-24). Þess gerist ekki þörf að rekja orðalagslík- mgar kaflanna. Þær eru fleiri og meiri en svo, að nokkur maður beri "rigður á, að Jón Espólín hafi þekkt þá skýrslu, sem faðir hans sendi M Kaupmannahafnar og stóð í beinu sambandi við þau tilmæli rentu- kammersins að gengið yrði úr skugga um, hvort hinn dýrmæta leir bleikju, sem hentaði til postulínsgerðar, væri að finna inni á Bleiks- mýrardal. Hér verða því ekki tíundaðar orðalagslíkingar í einstökum atriðum þessara tveggja frásagna, en bent skal á, að þær ná til flestra málsgreina í kjarna frásagnanna. Hins vegar er skylt að geta þess, að frásagnirnar greinir á í sumum atriðum og þeim veigamiklum. Höfuð- munur frásagnanna felst í mjög svo mismunandi tímatali, og sagn- fræðilega séð skiptir það miklu máli. í skýrslunni segir, að atburðirnir, sem frá greinir, hafi gerst 'circa 1400'. Það er eins og það hvarfli að manni, að hér gæti tilhneigingar til að miða gamla atburði við Svarta- dauða. En Jón Espólín tímasetur atburðina seint á fyrsta fjórðungi 17. aldar. Þar skakkar hvorki meira né minna en röskum tveimur öldum. fil þess að rökstyðja tímasetningu og ástæðu þess, að hann víkur svo gagngert frá tímatali heimildar sinnar, semur Jón Espólín inngang frá- sagnar sinnar um Sigurð Hrólfsson sýslumann og ættmenn hans og vitnar í dóm, sem Sigurður sýslumaður lét ganga í máli Sveins ríka á Hlugastöðum Jónssonar gegn Einari nokkrum Eiríkssyni 16. september 1623. Sýslumenn fyrr á tímum virðast margir hverjir hafa átt dómasöfn i handritum, sem vitanlega gátu komið þeim að notum í dómsstörfum þeirra. Dómur sá, sem Jón Espólín vitnar til, fjallar um grip og hald Einars þessa á hesti Sveins rfka, er þekktur í a.m.k. einu handriti frá Því um 1650 og raunar einnig eldri dómur í sama máli frá 21. apríl 1623. Undirskriftin er öll mjög stflfærð í hdr., og leikur því nokkur vafi á hvort hér er stafrétt úr ráðið. - Bæði bréf sýslumanns (frá 6. september 1779) og þessi skýrsla eru í 'nnkomnum bréfum rentukammers undir Islands Journal rentukammers 4, nr. 563 (Askja Rtk 40. 3 í Þjóðskjalasafni).