POSTULÍNSGERÐ OG HESTAVlG 39 Vind sem sagt er Vind hólar séu vidkéndir, og att var vid Bleik Sveins ríka á Illhugastödum cfr. pag. 5650 sem drapst á Bleiks- mýrardal. Þad var seinast Hestavig hér, Sigmundr átti mörg börn, Árna, Gudrúnu etc.56 En undir dálki 5650 segir svo: Sigrídr (Kolbeinsdóttir Eiríkssonar) átti Svein á Illhugastöðum Magnússon Þorlákssonar p 5251 þeirra afqvæmi þar. Undir dálki 5251 er gerð grein fyrir Þórdísi, konu Tomasar, sonar Sveins á Illugastöðum Magnússonar. Séu þessi orð Jóns Espólíns í Ættartölunum um Svein Magnússon borin saman við ættrakninguna, sem kemur fyrir undir lokin í frásögn Jóns Espólíns í Árbókunum, til Sveins lögmanns Sölvasonar (d. 1782), verður ekki betur séð en Sveinn Magnússon, langafi Sveins Sölvasonar, sé dóttursonarsonur Sveins ríka á Illugastöðum Jónssonar. Ættartölur Espólíns eru hinu sama marki brenndar sem flest önnur gömul ættartölurit, að erfitt er að átta S1g á tímatali þeirra nema með því að draga saman meiri og minni efni- við til samanburðar, ef hann er þá fáanlegur. Einhver tvískinnungur bnnst mér vera í Ættartölum Espólíns annars vegar og í Árbókum hans hins vegar í hugmynd höfundarins um, hvenær þeir voru uppi nvor um sig, Sveinn Jónsson og Sveinn Magnússon, sem báðir virðast hafa búið á Illugastöðum. Ég læt þó ættfræðingum eftir að greiða úr pví máli. Það breytir hvort sem er engu um það, hver var heimild Jóns Espólíns fyrir síðasta hestavígi á íslandi. Þeir, sem þekkja til skýrslugerðar íslenskra yfirvalda til danskra stjórnvalda í Kaupmannahöfn á 18. öld, furða sig ef til vill á því, að Jón Jakobsson skuli hafa sent rentukammerinu þær þrjár skýrslur um jarðvegsefni, sem hér hafa verið birtar, á íslensku. Ástæðuna tel ég hiklaust vera þá, að sýslumaður veit sem er, að Jón Eiríksson konfer- ensráð hefur persónulega áhuga á, að rannsökuð séu ýmis jarðvegsefni a Islandi. Að baki þessara rannsókna lá sennilega ekki framar öllu hreinn vísindalegur áhugi, heldur ekki síður viðleitni til að fitja upp á einhverjum nýjungum, sem verða mættu liður í eflingu atvinnuvega Sonarsonur þessa Sigmundar gæti verið Sigmundur sá Árnason, sem býr á Garðsá 1703, 44 ára að aldri (Manntal á íslandi 1703, Rvík 1924-1947, bls. 343). Þeir, sem nota Ættartölur Jóns Espólíns, komast brátt að raun um, að þar nægir að vísa til dálka.