40 GRIPLA landsmanna. Það kom svo í ljós, eins og stundum endranær, að hug- myndin um postulínsleir á Bleiksmýrardal var ekki raunhæf, en upp kom saga um tilþrifamikið hestavíg á dalnum endur fyrir löngu. POSTULÍNSEFNI VIÐ GUNNUHVER Fyrst hér er á annað borð farið að ræða um íslensk jarðefni til postu- línsgerðar, er freistandi að minnast á hverinn Gunnu eða Gunnuhver á Reykjanesi, sem var einhver kunnasti leirhver landsins. Laust eftir 1700 dó kona að nafni Guðrún Önundardóttir í Sandhólakoti hjá Kirkjubóli á Miðnesi, sennilega ekkja eftir mann, sem Oddur hefur heitið. Talið var, að hún hefði gengið aftur og sótt að Vilhjálmi lög- réttumanni Jónssyni á Kirkjubóli (d. 1706) allhastarlega. Var hinn kunni galdramaður séra Eiríkur Magnússon í Vogsósum (d. 1716) feng- inn til að ráða niðurlögum afturgöngunnar, og kom hann henni fyrir í hver þeim úti á Reykjanesi, sem síðan er nefndur Gunna eða Gunnu- hver. (Sbr. Þjóðs. J.Á. (ný útgáfa) I, Rvík 1954, bls. 563, nr. 577-8; sama rit III, Rvík 1955, bls. 508-511). Danski fræðimaðurinn P.E. Kristian Kálund kemst svo að orði í hinu kunna riti sínu Bidrag til en historisk-topografisk Beskrivelse af Island (I, Kh. 1877, bls. 36): Næsset (þ.e. Reykjanes) er gennemtrængt af en stærk under- jordisk varme, man finder her rygende dampe og hverer eller kogende kilder; den bekendteste af disse er den sákaldte 'Gunna', der skal have sit navn efter en gengangerske, som den bekendte galdrekyndige præst Erik Magnussön i Selvág (11716) manede her ned; stedet har været meget passende valgt, kilden er nemlig at se til som en stor kogende lerpol. I den omgivende h0j har man i de seneste ár trot at finde en art porcellænæmne (silica), som man er begyndt at bryde for at fá det udf0rt til Eng- land. Að öðru leyti en hér greinir er höfundi þessarar ritgerðar alls ókunnugt um útflutning á þessu postulínsefni. En minna má á gamlar frásagnir, hjátrú blandnar, af Gunnuhver í Landfræðissögu íslands eft- ir Þorvald Thoroddsen (I, Rv. 1892-1896, bls. 257, og III, Kh. 1902, bls. 126), sem varða þó á engan hátt postulínsefni.