42 GRIPLA um fjáreign Sveins ríka og tilvísun til dóms í máli Sveins, en þann dóm hefur hann vafalaust haft fyrir sér í skrifuðu dómasafni.57 Fróðleik um Sigurð Hrólfsson og ættmenn hans er komið að til að styrkja tímasetn- ingu atburðarins. Fróðlegt er að gefa gaum niðurlagi frásagnar Jóns Espólíns um hestavígið, þar sem hann tekur svo til orða: . . . enn söguna um hestavígit heyrda eg af Þíngeyingi einum í æsku, er svo var gamall, at muna mátti þá menn gamla er mundu Sigmund, ok var hún þá skrásett. Vitanlega hefur hinum gáfaða og fróðleiksfúsa dreng Jóni Jónssyni (síðar Espólín) sem vantaði aðeins rúma tvo mánuði upp á 10. árið sitt, verið það minnisstætt, þegar sagan var færð í letur, líklega á Espihóli, 13. ágúst 1779. Ekki er víst, hvað umræddur Sigmundur hefur lifað lengi. Einnig var mikil hætta á, að honum væri ruglað saman við Sig- mund þann Árnason, sem býr á Garðsá 1703 (44 ára) og 1712, er jarða- bókin var saman tekin. Eðlilegast er, að orðin 'Þingeyingi einum' eigi við gamlan Fnjóskdæling, enda hafa sendimenn Jóns sýslumanns úr Kaupangssveitinni vafalaust haft samband við gamla Fnjóskdæli til að spyrjast fyrir um bleikjuna á Bleiksmýrardal. Þegar athugaðar eru dánarskrár í prestsverkabók séra Gunnlaugs Gunnlaugssonar á Hálsi (hann mun þó hafa búið lengst af á Hallgilsstöðum), getur þar að líta einn mann, sem nær eftirtakanlega háum aldri. Annars er það að- almeinið við sumar gamlar 'prestsverkabækur', að það hvarflar stund- um að manni, að ekki séu allir færðir þar til bókar og að prestarnir geri sér þá ef til vill einhvern mannamun. En í prestsverkabók Gunnlaugs Gunnlaugssonar er það Sigurður Bjarnason, Krókum, 89 ára, grafinn 13. júní 1782, sem hlýtur að vekja sérstaka athygli. Sé aldurinn rétt til- færður, ætti Sigurður að vera fæddur um 1694. í>ó er rétt að geta þess, að í sumum gömlum heimildum verður vart tilhneigingar til að mikla enn aldur mjög gamals fólks. Af drengjum í manntalinu 1703 er líkleg- astur til að vera sami maður Sigurður Bjarnason, 10 ára, í Dyngju (grasbúð) við Stóruhellu í Neshreppi á Snæfellsnesi, sonur Þorgerðar Bjarnadóttur, sem þar býr. Ekki skal þó fullyrt, að drengurinn í Dyngju 1703 og gamalmennið í Krókum í Fnjóskadal séu ein og sama 57 Um dóma þessa, sjá hér aö framan bls. 37-38 og Sýslumannaæfir I, Rvík. 1881- 1884, bls. 91-92. Gæta ber þess, að á bls. 92 (6. 1. a.o.) er Sigurð (á Garðsá) prentvilla fyrir Sigmund.