82 GRIPLA honum hafa um það að segja og sýnir fram á hvaða heimildir sé líkleg- ast að höfundur hafi stuðst við. Um samband sögunnar og Heims- kringlu segir Bjarni meðal annars: Það er engu líkara en höfundar forðist markvisst að rekja sögu- þráð Hkr., og er Knýtl.s. augljóslega jyllingarrit við hana. Með því er átt við, að höfundur hafi stöðugt Hkr. til hliðsjónar, víki sér yfirleitt undan því að endursegja hana, en sæki til annarra sögubóka, þegar færi gefst.14 Ég fæ ekki betur séð en að þarna sé vinnubrögðum höfundar Knýtl- inga sögu rétt lýst; hann hefur af skiljanlegum ástæðum sleppt öllum frásögnum Heimskringlu, sem voru Danakonungum til vansæmdar, en það skýrir ekki allt sem hann lætur ósagt. Bölvunin er að upphaf sög- unnar skuli vera varðveitt einungis í eftirritum einnar skinnbókar, en af því leiðir að ekki verður fullyrt að 21 kapítuli í upphafi hennar sé óbreyttur texti höfundarins. Bjarni Guðnason ræðir um nafn sögunnar á bls. lxxii-lxxiii í formála og bendir á að það komi fyrir í eftirriti Árna Magnússonar af Cod. Ac.; þar hefur Árni Magnússon skrifað efst á fyrstu blaðsíðu: '(Æfi Danakonunga, vulgo Knytlinga saga.)'. í Ólafs sögu helga eftir Snorra Sturluson er heitið Knýtlingar haft um afkomendur Knúts ríka, bæði í sérstöku sögunni og í Heimskringlu, svo og í Morkinskinnu og Fagur- skinnu,15 og bendir Bjarni á, að Gormur gamli, Haraldur blátönn eða Sveinn tjúguskegg séu hvergi nefndir Knýtlingar í fornum sögum, en af þessu leiði, að sú ályktun verði ekki dregin af nafninu Knýtlinga saga, að sagan hafi upphaflega byrjast á frásögnum af Knúti fundna. Hér hefði Bjarni mátt styðja mál sitt með því að vitna í orð Árna Magn- ússonar í samantekt hans um íslendingabók Ara fróða: '. . . Knytling- orum ( : Canuti magni nepotum) historia . . .'16 Því miður er ekki vit- að með vissu að hvaða marki titill sögunnar í eftirriti Árna Magn- ússonar styðst við Cod. Ac. í eftirritinu hefur Árni tölusett kapítula Bls. lxxvi-lxxvii. Saga Óláfs konungs hins helga, utg. av Oscar Albert Johnsen og Jón Helgason, Oslo 1941 (stytt hér á eftir ÓIHJH), bls. 596.1 og 611.5. Snorri Sturluson, Heimskringla, Bjarni Aðalbjarnarson gaf út (fsl. fornrit XXVII), Reykjavík 1945 (stytt hér á eftir HkrBA), bls. 401.5 og 412.18. Morkinskinna, udg. ved Finnur Jónsson, K0benhavn 1932, bls. 18.10, 22.12 og 89.12-13. Fagrskinna, udg. ved Finnur Jónsson, K0benhavn 1902-03, bls. 195.16 og 235.5. Árni Magnússons levned og skrifter, K0benhavn 1930, II, bls. 74.8-9.