98 GRIPLA konungr tíu tigi vetra.'40 Annarri spássíugrein er vísað í texta þar sem segir frá falli Haralds gráfeldar: 'þa hafði hann / raðit fyrir nor/egi .xv uetr / met berðrum (villa fyrir breðrum) / sinum oc guNÍldi / M(oðor) s(inni).' Þetta er tímatal Ara fróða.41 Augljóst er að upphaf konungatalsins á ekki rætur að rekja til sömu heimildar og 60. kapítuli ÓlTr, og verður af þeim sökum ekki gert ráð fyrir að það styðjist við þá sömu sögu af Danakonungum og höfundur ÓlTr notaði. Einnig er augljóst að upphaf Knýtlinga sögu hefur ekki verið aðalheimild að frásögn konungatalsins af Haraldi blátönn, Sveini tjúguskegg og Knúti ríka. Um Knút ríka segir að 'hann fór með tólf hundruð skipa í Nóreg' (DS 329.15). Þetta kemur heim við helgisög- una af Ólafi helga: 'Siglir sunnan af iotlande ivir lima fiorð með .xíí.c. skipa',42 Fagurskinnu: '. . . oc com i Limafiorð. oc sigldi þaðan til Nor- egs með .xii. .c. skipa'43 og ÓlTr: 'Hann hafði eigi færa en .xij.c. skipa.'44 Einnig er tekið fram í konungatalinu, að Ólafur helgi varð að 'rýma landit fyrir Knúti konungi, ok fór hann fyrst í Svíaríki ok síðan austr í Hólmgarð' (DS 329.18-19). í helgisögunni segir að Ólafur helgi fór 'allt i sviðþioð austr . . . Oc var annan vætr i holmgarðe.'45 í öðrum heimildum er ekki tekið fram hve mörg skip Knútur konungur hafði þegar hann fór að leggja undir sig Noreg, og Hólmgarður er ekki nefndur í heimildum sem segja frá flótta Ólafs digra austur í Garða- ríki, öðrum en konungatalinu og helgisögunni. Enn er þess að geta, að Heinrekur sonur Sveins Sveinssonar, Úlfssonar, er nefndur Heinrekur halti í Knýtlinga sögu, en Heinrekur skötulær í konungatalinu (DS 332.15-16 og 22-23) og í Fagurskinnu. í Fagurskinnu segir um Ingiríði drottningu Haralds gilla, að 'Ingiriði hafðe fyrr atta Heinrekr skotu- lær. sunr Sveins Sveinssonar Dana konongs',46 sbr. DS 332.22-23. í Heimskringlu er Heinrekur nefndur halti og ættfærður á sama hátt og í ÓlTrEA I, bls. 131.6-7, Jómsvíkinga saga, Ed. by N.F. Blake, Nelson's Icelandic Texts, Alva 1962, bls. 7.18-19. Sjá Svend Elleh0j, Studier over den ldste norr0ne historieskrivning (Bibl. Arn. XXVI), bls. 70. Olafs saga hins helga. Utg. ved Oscar Albert Johnsen, Kristiania 1922, bls. 64.2-3. Fagrskinna, udg. ved Finnur Jónsson, Kobenhavn 1902-03, bls. 171.5-7. 44 ÓlTrEA II, bls. 327.14. Olafs saga hins helga, nefnd útgáfa, bls. 71.17-20. Fagrskinna, nefnd útgáfa, bls. 341.7-9.