128 GRIPLA svo sýnast til, að hann mundi bezt til fallinn að bera hvert tignarnafn sem hann hlyti. Brands þ. . . . og svo hafði hann mælt Þjóðólfur, að honum þætti eigi sýnt, að annar maður vri betur til konungs fallinn í íslandi fyrir sakar örleika hans og stórmennsku. Bandam.s. (K) Hvort var það satt, að Haraldur konungur mælti það, að værir bezt til konungs fallinn á íslandil Um skyldleika þessara rita verður ekki fjallað að sinni, þótt hins megi geta að mér þykir sennilegt að Bandamanna saga hafi stuðzt við þátt. Að vísu bregður oft fyrir svipuðu orðalagi í tveim sögum, þótt þær virðist vera lítt skyldar að öðru leyti, og skal því fara varlega í þær sakir að draga ákveðnar ályktanir af slíku. En þegar vönduð saga á borð við Bandamanna sögu á í hlut, verður að gera ráð fyrir víðlesnum höfundi. Lítill vafi leikur á því að Brands þáttur hefur þegið úr ísleifs þætti biskups. Eftirfarandi glefsur úr síðarnefndum þætti má bera saman við orð Haralds og lýsingu á Brandi hér að framan: 'Og á einni hátíð mælti konungur: Brandur, þigg að mér skikkju þessa." Það var skarlaks- möttull . . . ísleifur var þá prestur og félítill, er hann kom sunnan úr löndum. Þá mælti Brandur: Þú skalt þiggja að mér skikkju þessa, er konungurinn gaf mér." Hann svarar: Eigi hefir þú enn tapað örlynd- inni, og vil eg gjarna þiggja."' (Útg. 1938, 21. bls.). Þetta á að hafa gerzt á dögum Ólafs helga, sem gefur Brandi skikkju, sem Brandur gefur síðan ísleifi; að lokum tekur konungur gjöfina aftur og gefur sjálfur ísleifi, en geldur Brandi verð fyrir. (Hér skal þess getið innan sviga að Hungurvaka hafði greinilega áhrif á Auðunar þátt vestfirzka sem einnig er í Morkinskinnu og öðrum konungabókum. Hungurvöku segist svo frá um vígsluför ísleifs bisk- ups: 'Síðan fór hann utan og suður til Saxlands, og sótti heim Heinrek keisara Konráðsson og gaf honum hvítabjörn, er kominn var af Græn- landi, og var það dýr hin mesta gersemi. En keisarinn fékk ísleifi bréf sitt með innsigli um allt veldi sitt. Síðan fór hann til fundar við Leon- em páfa.' (1938: 76). Auðunar þáttur segir frá manni sem sækir hvíta- björn til Grænlands frá Noregi og fer síðan með hann til Danmerkur