VIER GEDICHTE FÚR EINE HOCHZEIT IM JAHRE 1738 167 Kvæði (I) er ort undir hefðbundnum dróttkvæðum hætti, og er þar fyrst og fremst fjallað um ættgöfgi brúðhjónanna. Kvæði (II-IV) vitna um áhrif frá dönskum tækifæriskveðskap þeirra tíma, bæði hvað varðar efni og inntak. Skiptist hvert kvæði niður í nokkra hluta, sem ortir eru undir ýmsum erlendum háttum. Flestir voru þessir hlutar ætlaðir til söngs, og hefur skáldið skrifað hjá tilvísanir til viðeigandi laga. Þrjú laganna reyndist unnt að finna. Lokahluti kvæðis (IV) er dreginn upp á pappírinn í mynd trés, og fylgir Jón einnig í því tízku þeirra tíma. Skrif hans í AM 986 4to og AM1028 4to sýna að hann hefur jafhframt velt slíkum efnum fyrir sér fræði- lega (erlendum háttum, tengslum ljóðs og lags og kvæðum í formi myndar).