170 GRIPLA 1978-79 eftir útgáfu Jóns Helgasonar, en 1980 var bætt við þeim 11 kvæðum Konungsbókar, sem vantar í útgáfu hans, og var þá farið eftir uppskrift Jónasar Kristjánssonar. Til þess nutum við styrks úr Rann- sóknarsjóði IBM vegna Reiknistofnunar Háskóla íslands. Haustið 1980 voru öll kvæði Konungsbókar komin í véltækt form og að mestu tilbúin til vélrænnar úrvinnslu. Eftir var þó að auðkenna fasta hástafi og leysa úr nokkrum álitamálum. Síðan dróst að halda verkinu áfram vegna annarra starfa. Sumarið 1983 var okkur veittur styrkur úr Vísindasjóði til að vinna að þessu verkefni, og gátum við þá aftur farið að sinna því. Nú hefir til reynslu verið gerður orðstöðulykill að hinum véltæka texta, og er hann til í tveimur eintökum. Enn fremur voru gerðar orðtíðniskrár til bráðabirgða. Smám saman hafa hugmyndir okkar verið að skýrast og mótast, og er nú stefnt að því að gefa út öll eddukvæði með samræmdri stafsetn- ingu sem næst þeirri, sem tíðkast í orðabókum. Um helstu útgáfur eddukvæða (auk hinnar ófullgerðu útgáfu Jóns Helgasonar) sjá Holtsmark 1958:487. Talningin, sem greint er frá hér, nær einungis til Konungsbókar, og verður því að gera ofurlitla grein fyrir henni og textanum, sem talning- in tekur til. Vélrænni úrvinnslu gagna stjórnaði Magnús Gíslason reiknifræðingur, Reiknistofnun Háskóla íslands. 2.0 Konungsbók eða Codex Regius eddukvæða (Gks 2365 4to) er ís- lensk skinnbók í fjórblöðungsbroti frá síðari hluta 13. aldar. Hún er aðalheimild eddukvæða og frægust allra íslenskra bóka. Á 17. öld komst hún í eigu Danakonungs og varð mesti dýrgripurinn í safni hans. En vorið 1971 var hún flutt til íslands á dönsku herskipi og af- hent íslendingum ásamt annarri íslenskri skinnbók úr safni konungs, Flateyjarbók. Þessar bækur eiga nú heima í Stofnun Árna Magnússon- ar á íslandi. Konungsbók er hvorki stór né skrautleg og ekki einu sinni heil. Hún er nú 45 blöð eða 90 síður, en talið er, að 8 blöð úr henni hafi týnst. í bókinni eru 29 kvæði í þeirri röð, sem hér segir: 1. Völuspá 2. Hávamál 3. Vafþrúðnismál 4. Grímnismál 5. Skírnismál