176 GRIPLA (1,31). Mestu veldur um hið háa hlutfall í Alvíssmálum, að þar er hálft erindi endurtekið hvað eftir annað. Einnig er mikið um endurtekning- ar í Hávamálum, Lokasennu (nr. 4) og Vafþrúðnismálum (nr. 10), þar sem slakkar eru á súluritinu. Hins vegar kemur á óvart, að Grípisspá (nr. 6) skuli hafa svo hátt hlutfall (2,00) og hærra en t.d. Völuspá (1,76) með öllum sínum stefjum. Endurtekningarnar í Grípisspá eru annars konar og leyna á sér. Hér fara á eftir fimmtán algengustu orðin í eddukvæðum Konungs- bókar (tíðnitala fyrir aftan): 870 768 730 706 512 406 401 336 315 297 266 234 233 232 174 Athugað var, hvaða orðmyndir væru sameiginlegar öllum 29 kvæð- unum í Konungsbók, og kom þá í ljós, að þær voru tíu (skáletraðar á skránni), nokkurn veginn hinar sömu og tíu algengustu orðin. Eini munurinn er sá, að ritorðið en, sem er 9. algengasta orðið, kemur ekki fyrir í öllum kvæðunum. í stað þess kemur orðmyndin þá, sem er 11. algengasta orðið. Orðið en dreifist eigi að síður nokkuð jafnt, því að það kemur fyrir í öllum kvæðunum nema því stysta, Guðrúnarkviðu III. Ef dreifingin væri alveg jöfn, ættu að vera tvö dæmi þar, þ.e. eitt í hverju hundraði lesmálsorða. Á það má minna, að í eddukvæðum Konungsbókar getur en verið tvenns konar samtenging, bæði gagn- stæðis- og samanburðartenging, og auk þess greinir. I öllum kvæðum nema Guðrúnarkviðu III eru a.m.k. tvö dæmi um en. 1. er 2. ok 3. ek 4. at 5. þú 6. í 7. á 8. um 9. en 10. þat 11. þá 12. ef 13. hann 14. þér 15. mér