THE NEGLECTED GENRE OF RÍMUR-DERIVED PROSE 201 efni. Orðalagslfkingar eru talsverðar sem vænta má, en þó er athyglisvert að í sögunni verður naumast vart endurhljóms frá ljóðformi rímnanna, hvorki frá stuðlasetningu né fornyrðum eða flóknum kenningum sem nóg er af í rímun- um. Virðist svo sem höfundur hafi vísvitandi reynt að dylja hinn skáldlega uppruna sógunnar. Hann eyðir jafnmiklu rúmi til að endursegja síðustu rím- una sem hinar fyrri tvær. Líklegasta skýringin er sú að í lokarímunni er meira af skemmtilegu efni sem vert var að endursegja.