JÓRSALAFERÐ 207 sa feme a constantinoble pur vere roy hugon'.10 Jórsalaferð hefst með svipuðum hætti, nema ekki er minnst á Miklagarð og að þangað fari Karlamagnús fyrir orð konu sinnar: 'Hér hefr upp ok segir frá þeim at- burðum, hversu Karlamagnús konungr sótti Jórsalaborg ok hina helgu gröf dróttins várs'.11 Af þessum orðum mætti ætla að í sögunni skipti meira máli förin til Jórsala en Miklagarðsferðin, en þegar á líður frá- sögnina kemur annað í ljós. Ætla má að aðfaraorð kvæðis og sögu hafi verið 'skálduð' af afriturum, líkt og algengt var. Ljóðlínur 1-75, kap. l.u Dag nokkurn fer Karlamagnús til Saint-Denis kirkju og setur á höfuð sér kórónu sína og gyrðir sig sverði. Með honum eru bar- ónar hans og riddarar og einnig drottning hans sem ber sína kór- ónu. Karlamagnús spyr drottninguna hvort hún hafi nokkurn tíma séð mann er betur sómi sverð og kóróna en honum. Hún segir að vera megi að hann lofi um of sjálfan sig. Viti hún um konung sem betur beri sína kórónu. Karlamagnús verður æva- reiður þegar hann heyrir þetta, því að margir heyra á tal þeirra, og heimtar að hún skýri frá nafni þessa konungs. Kveðst vilja fara á fund hans til að kanna sannleiksgildi orða hennar, en hafi hún logið ætlar hann að höggva af henni höfuðið með sverði sínu. Drottning fellur til fóta konunginum og biðst vægðar, vill fá að sanna að hún hafi ekki sagt þetta honum til háðungar. En Karlamagnúsi er það eitt í mun að vita hver þessi konungur sé, og þegar drottning sér að ekki verður hjá því komist að svara, kveðst hún hafa heyrt getið konungs sem heiti Húgon hinn sterki og sé hann keisari af Miklagarði. Þegar Karlamagnús er kominn aftur til Parísar kallar hann saman jafningjana tólf og aðra ridd- ara og segir þeim að þeir eigi að fara með honum til Jórsala að gröf drottins og krossinum helga. Hafi honum verið það boðað þrisvar í svefni. Síðan muni þeir fara á fund konungs nokkurs Koschwitz, Karls des Grossen Reise, bls. 1. Hér hefst bókin sem segir frá því þegar Karl Frakkakonungur fór til Jórsala og fyrir orö konu sinnar til Miklagarðs að hitta Húg- on konung. 11 Unger, bls. 466. Kvæðinu skipti ég niður í einingar sem samsvara köflum sögunnar.