208 GRIPLA sem hann hafi heyrt getið. Skuli þeir hafa með sér til fararinnar sjö hundruð úlfalda hlaðna með gulli og silfri, svo að þeir geti verið í burtu í sjö ár.13 í sögunni er gert ráð fyrir að Karlamagnús beri kórónu sína í París en ekki í Saint-Denis (v. 1), og þess vegna snýr hann ekki aftur til Parísar, eins og hann gerir í kvæðinu (v. 60), heldur 'fer heim til hallar sinnar'. Nokkurn mismun annan er að finna í þessum hluta milli kvæð- is og sögu. Reynt er í sögunni að gera ögn mildari hótun konungs um að höggva af eiginkonu sinni höfuðið (w. 25, 42), og er hann látinn segja: 'ok skaltu þar fyrir týna lífi þínu',14 'ella er annarr [kostr] verri'.15 í kvæð- inu heldur drottning því fram að hún viti um konung sem beri kórónu sína glæsilegar ('plus belement', v. 16) en eiginmaðurinn. í sögunni segist hún vita um konung sem beri sína kórónu 'hærra'. Þegar líður að lokum kvæðisins setja Karlamagnús og Húgon keisari upp kórónur sínar og kemur þá í ljós að Karlamagnús ber sína kórónu nokkru hærra. Hvað þetta atriði varðar tengir þýðandinn upphafið við endinn. Kvæðið hefst með þessum orðum: 'Un jur fu Karlemaine al seint Denis muster.'16 Sögumaður Jórsalaferðar felur sig hins vegar á bak við frásögu annarra: 'Svá er sagt at hann var í París at þessu sinni.'17 I kaflalok segist Karlamagnús ætla á fund konungs þess sem drottn- ingin hefur sagt honum frá og vera þar sjö vetur 'ef þörf gerist'. I kvæðinu segir hann: 'Ja ne m'en turnerai trescque l'avrai trovez' (v. 75).18 í þessum fyrsta kafla sögunnar eru allmargar ljóðlínur felldar brott, en þó er ekki um að ræða samfellda hluta, heldur aðeins stakar línur. Efnislega eru sagan og kvæðið samhljóða, en þar sem frásaga sögunn- ar er knappari er á henni dálítið annar blær. Felldar eru niður ljóðræn- ar endurtekningar (w. 34, 52, 55-57), lýsing á útliti drottningar (v. 6) og sverði Karlamagnúsar (v. 3), skýring á því hvers vegna Karla- Ágrip þetta, og þau sem á eftir koma, eru miðuð við kvæðið, en ekki við söguna. 14 Unger, bls. 466. 15 Unger, bls. 467. Le Voyage de Charlemagne, v. 1: Dag nokkurn fór Karlamagnús til kirkju heilags Dionisii. 17 Unger, bls. 466. Le Voyage de Charlemagne: Ég mun ekki koma heim aftur fyrr en ég hef fundið hann.