230 GRIPLA fullvissa sig um að það sé engan veginn hægt að drýgja þessar íþróttir. Nefni ég sem dæmi ljóðlínur 576-78: Ci ad merveillus gab! ceo ad dist li escute: Unc de si dure carn n'oi' parler sur hume. De fer est u d'acer, si il cest gab demustret!87 Síðar gerist svo hið ótrúlega. Guð á beinan og óbeinan þátt í að þrjú þessara 'gabba' rætast, og sé það haft í huga hljómar napurlega þessi athugasemd njósnarmanns: . . . cist hom est enragez! Unques Deus ne vus duinst cel gab a cumencer (vv. 528-29).m í þessum kafla sögunnar eru felldar niður 3 ljóðlínur. Ljóðlínur 484-506, kap. 7. Gabb Olivers á að vera í því fólgið að hafa hundrað sinnum 'vitni' af dóttur Miklagarðskeisara. Njósnarmaður heldur að fyrr muni Oliver gefast upp. Næst kemur röðin að Túrpín erkibisk- upi. Hann ætlar að stökkva yfir tvo hesta og koma sitjandi niður á þann þriðja. Eiga hestarnir að vera á harðahlaupum. Og ekki nóg með það. Hann ætlar líka að henda eplum á loft. En falli eitt þeirra til jarðar má Karlamagnús klóra úr honum augun. I sögunni ætlar Oliver að leiða stúlkuna í landtjald sitt, en í kvæðinu ætlar hann að athafna sig í herbergi hennar (v. 487). Ef til vill hefur þýðanda þótt hugmynd Olivers helst til gróf og reynir því að 'fegra' hana dálítið. Aebischer bendir réttilega á að tal Olivers í kvæðinu um 'vitni' ('Si jo n'ai testimonie anut de li cent feiz,' v. 488) sé býsna óljóst. 'En quoi consiste exactement cet engagement, que doivent étre en réalité ces 'témoignages', nous ne le savons pas.'89 En njósnarmaður skilur ekki Le Voyage de Charlemagne: Þetta er fáheyrt gabb, segir njósnarmaður: Aldrei heyrði ég getið um jafn hart hold á manni. Úr járni er hann eða stáli ef hann fremur þetta gabb. Le Voyage de Charlemagne: . . . þessi maður er óður! Guð gefi að þú byrjir aldrei þetta gabb. Le Voyage de Charlemagne: Ef ég hef ekki í nótt vitni af henni hundrað sinnum. - Sjá einnig bls. 90 í sama verki.