JÓRSALAFERÐ 231 þetta nema á einn veg. Og þýðandi skilur það aðeins á einn veg: 'en ef ek drýgi eigi vilja minn 100 sinnum með henni á einni nótt til vitnis hennar.'90 í sögunni er það ekki hinn virðulegi erkibiskup Túrpín sem ætlar að leika trúð og hlaupa yfir hesta og henda á loft eplum, heldur er það Bernharður. Þeir skipta um sess. Þegar svo röðin kemur að Bernharði fer erkibiskupinn í hlutverk hans. Ekki verður séð að nein sérstök ástæða liggi að baki þessari breytingu.91 Felld er brott ljóðlína 497 og er hún eina ljóðlínan sem felld er niður í þessum kafla sögunnar. Ljóðlínur 507-530, kap. 8. Röðin er komin að Villifer af Orenge. í gabbi sfnu kveðst hann ætla að mölva fjörutíu tígulsteina úr höllinni með gullknetti sem hann þykist geta varpað og lyft með annarri hendi þó að þrír tug- ir manna fái ekki bifað honum. Oddgeir ætlar að snúa sundur miðstólpa hallarinnar. I sögunni er hugmynd Villifers sú að kasta knettinum á borgarvegg- inn, ekki á höllina, og fella niður af honum 'fjóra faðma á hvern veg'. Hugsanlegt er að þýðanda hafi fundist að með þessu 'gabbi' væri geng- ið of nærri persónu Húgons og þess vegna hafi hann breytt því. Felldar eru brott ljóðlínur 522, 526-27. Ekki eru aðrar ljóðlínur felldar niður í þessum kafla. Ljóðlínur 531-564, kap. 9. Nemes hertogi gortar af því að hann ætli að klæðast hringa- brynju og hrista af henni alla hringana eins og hálmstrá. Bæring- ur vill láta grafa sverð niður í jörðina þannig að oddarnir snúi upp, en síðan ætlar hann að kasta sér niður á sverðsoddana ofan af háum turni. Bernarður ætlar að fá á eina til að skreppa úr far- vegi sínum og flæða yfir akra og fylla kjallarana í Miklagarði. Mun keisarinn verða að flýja upp í hæsta turn. Nemes kvæðisins er hógværari en Nemes sögunnar og ætlar aðeins Unger, bls. 474. 91 Sjá Aebischer, Versions norroises, bls. 47.