118 VIÐ ÞJÓÐVEGINN eimreiðin lega skifting þessa margumrædda láns hefur nú reynst þessi samkvæmt skýrslu fjármálaráðherra: Lánsupphæðin er £ 540.000 með gengi 92V2 = íslenzkar kr. 11.055.000 Sú upphæð skiftist þannig: Landsbankinn...................... kr. 3.000.000 Dúnaðarbankinn................... 3.600.000 Sildarbræðslan..................... 1.300.000 Landsspítalinn..................... 847.000 Arnarhvoll (skrifstofubyggingin)...... 351.000 Súðin (strandferðaskip)............. 231.000 Útvarpið.......................... 152.000 í Hambrosbanka................... 265.000 í ríkissjóði........................ 1.309.000______________ kr. 11.055.000 kr. 11.055.000 Ríkisskuldirnar taldi ráðherra, að verið hefðu í árslok 1930 kr. 40.210.000. Hann taldi ennfremur tekjuafgang ársins 1930 kr. 81.933, en Jón Þorláksson, 1. landskjörinn þingm., hefur borið fram fyrirspum í Ed. um ýms vafaatriði í sambandi við fjárlagaræðuna og haldið því fram, að raunverulega sé um 6V2 milj. kr. tekjuhalla að ræða á rekstri þjóðarbúsins árið 1930. Gallinn á fjármálaræðunni var aðallega sá, að þar vant- aði bæði skýrslu um inn- og útborganir og efnahagsreikning fyrir 1930. Eru það talin ófullnægjandi reikningsskil hjá einkafyrirtækjum, en þess verður líka að gæta, að hér var aðeins um bráðabirgðayfirlit að ræða. _. ., Um ríkisskuldirnar hefur verið deilt undanfarið- Deilan um _... ...... » 1 1 * * * - tekiuhallann. ^4tl Þeirn deilu að vera lokið nu að mestu. Aftur á móti er það dálítið ófullnægjandi fyrir almenning að láta segja sér það úr ráðherrastóli annarsvegar, að tekjuafgangurinn af rekstri þjóðarbúsins 1930 sé yfir 80 þúsund krónur, en hinsvegar úr þingmannsstóli, að tekjuhalli á sama rekstri þetta sama ár sé um 6V2 milj. króna. Hvor hefur réttara fyrir sér, spyr almenningur. Mikið af þeim miljónum, sem hér er um að ræða, hefur farið til eignaaukningar. Sumar greiðslurnar er að finna í skýrslu fjármálaráðherra um skifting enska lánsins 1930. Hinsvegar hafa útgjöldin farið langt fram úr áætlun. En með því að láta slíkt eiga sér stað í stórum stíl, misbeitir framkvæmdarvaldið því um-