122 VIÐ ÞJOÐVEGINN eimreiðiN _ , , samkomulagið gott milli Dana og Norðmanna 0 {sjand fyr en Grænlandsmálið sé leyst á viðunandi hátt. Það hefur komið til orða að leggja málið undir úrskurð alþjóðadómstólsins í Haag, en sumir Norðmenn efast um, að Danir fáist til þess. Málið er mikið á dagskrá í Nor- egi. En hvað gerir Grænlandsnefndin íslenzka, eða er hún ekki einhversstaðar til? Grænland hefur verið nefnt nýlenda íslands. Það er því ekki úr vegi, að íslendingar fvlgist með því, sem rætt er og ritað um landið meðal frændþjóða vorra. Þess vegna hefur verið skýrt nokkuð frá þessu máli hér. Ekkert er líklegra en að til breytinga dragi innan skams urfl stöðu Grænlands og framtíð. Norðmenn munu ekki láta sitja við orðin tóm, ef að líkindum lætur. Og Danir sjálfir eru farnir að ókyrrast, þrátt fyrir ummæli Staunings. Grænland er svo tengt Islandi sögulega, að Islendingar geta ekki setið hjá, þegar réttur norrænna þjóða til landsins er ræddur og metinn. Um bækur. Þú getur verið rlkur án þess að eiga nokkuð. Margur fátæklingurinn er ríkari en sá, sem getur veitt sér jarðnesk gæði. Það skiftir mestu máli, hvernig vér kunnum að færa oss það í nyt, sem oss mætir. Bók er pappír, prentsverta og kápa. Til þess að hún verði annað og meira, verðurðu að hafa tileinkað þér efni hennar. Bókasafn, sern aldrei er notað, er eins og kölkuð gröf, og óhreyfðar bækur í löngum hilluröðum eru eins og líkkistur frægra feðra. Og þó hefur þeim pen- ingum aldrei verið eytt að óþörfu, sem farið hafa fyrir bækur. Þær erU eins og alabastursbuðkur konunnar. í þeim eru dýrmæt smyrsl, sem aldrei þrjóta, hve oft sem þú hefur þau um hönd. Innstæða í bókum er höfuðstóll, sem aldrei rýrnar. J. Ramsay MacDonald. Trú og vísindi. Undirstaða allrar vísindasfarfsemi er sannfæringin um, að skipulag og samræmi ráði í allri tilverunni, en slík sannfæring er trúarlegs eðlis. Trúartilfinning mín er fólgin í lotningarfullri undrun yfir því skipulagi, sem opinberast I því litla broti veruleikans, sem hin daufa sjón vor mannanna fær skynjað. Albert Einstein.