192 RADDIR EIMREIÐIN betra er seint en aldrei". En hvaö mörgum tugum þúsunda króna skyld" um «yið Jhafa tapað á því að hefjast ekki handa um þetta næstu árin fyrir stríðið? Þá var verðlag og vinna margfalt ódýrara en nú. Þá voru engar steinlagðar götur fil í bænum. Nú verður að rífa þær upp, e' leggja ætti hitaveitu í stórhýsi miðbæjarins. Svona mætti halda áfram að telja. I þessu máli, sem mörgum öðrum, sannast á okkur hið fornkveðna: að hika er sama og tapa". Við grípum tækifærin venjulega of seint ' og töpum. A. J. J. Er mögulegt að hita Reykjavik upp með Laugunum? í síðasta hefti Eimreiðarinnar" er getið um, að einn bær hér í Banda- ríkjunum, Boise í Idaho, sé hitaður upp með jarðhita. í sambandi við þessa frásögn bendir ritstj., dr. Valtýr, á það, hvort ekki væri tiltækileg' fyrir Reykjavík að íhuga þetta, því líkur væru til, að hana mætti hita upp með sömu aðferð. Er sú bending í fylsfa máta virðingarverð, oS sjálfsagt ætti að vera, að henni væri gaumur gefinn, því það er eitt ¦ nauðsynja- og velferðarmálum íslands, að þar sé innleitt alt það, er landinu getur í framtíðinni orðið til hagsældar og velferðar, hvort heldur það er í verklegu eða andlegu tilliti og hvaðan sem það kemur. Þetta mál ætti vissulega að geta orðið Islandi velferðarmál. Svo mikið er þar af hverum og Iaugum. En af því að Eimreiðin" er ekki á því hreina hvort nokkuð er hæft í þessu" (hefur það aðeins úr blöðum), þá kom mér til hugar> undir eins og ég las þetta í Eimr.", að fá frekari vitneskju um þetta> því auðvitað er þá fyrst hægt að veita þessu fult athygli, þegar sann- reynd er fengin um, að þetta sé virkileiki sé satt í raun og veru. Ttl þess nú að fá áreiðanlegar upplýsingar um þetta, þá skrifaði éS borgarstjóranum í Boiseborg (Eimr." kallar borgina Baise, en það er ekki rétt) og bað hann um upplýsingar þessu viðvíkjandi. Svaraði hann samstundis') með bréfi því, er hér fer á eftir í íslenzkn þýðingu: Boiseborg, Idaho (skrifstofa borgarstj.), 7. febr. 1910. A. J. Johnson, Chicago, 111. Kæri herra! Ég hef meðtekið bréf yðar, dagsett 4. þ. m., þar sem þér spyriis' fyrir um upphitun með heitu hveravatni í þessari borg. í austurenda borgarinnar höfum við heitar laugar, sem búnar eru til af manna völdum 1) Hér hef ég sett svohljóðandi neðanmálsUlausu: »Menn á þessu landi, æöri sem lægri, eru fljótari og fúsari aö svara bréfum hverju sem þeir eru beðnir að svara en flestir Austur-íslendingar, sem ómögulegt er aö nudda svar út úr, hvernig sem að et farið. Og hvað þetta snertir, eru margir af hinum svokölluðu leiðandi mönnum heldn mönnum og höfðingjum, verstir allra«. Hafa orðið mikil umskifti í þessa átt, til hins betra, á síðustu 20 árum? A.J.J-