EIMREIÐIN »Kastalinn« hjá ferðamanna-bænum Banff i Albertafylki, Kanada. Ferðagaman. Tröllið úr tónni gægðist, tunglskin og hvelfing heið. Tunglið er vildar-vinur, vísaði til og beið. Lýsti með lil,ju-fölva, en lestin um dalinn skreið. Tröllið úr tónni læddist, tvíhenti stóra eik. Feykti aí' snös og sniddum snjónum, í gamanleik. Dreifði um dimman skóginn dún-léttum mjalla-reyk. Síðan var sópnum kastað á sægráan hamra-stall. »Kastala«-veggur klofnar, við kylfunnar þunga fall. Hamramt var tröllið horflð, á hæla þess bergið skall. Jakobína Johnson-