146 ÞÆTTIR AF EINARI H. KVARAN eimreidi* Jón læknir Jónsson segir af honum í Oðni 1932 (28. ár, bls. 5860), eigi aðeins höfðingsskap hans í héraði, heldur einnig örlyndi hans, samvizkusemi og réttsýni. Það var siður hans, eins og fleiri góðra presta, að taka unglinga og kenna þeim undir skóla; hefur Sigurður Nordal, sem var einn nemanda hans, minst þessarar kenslu með þakklæti á hundrað ára afmæli hans.1) Heyrt hef ég, að hann hafi ósjaldan setið í vefstólnum og ofið á meðan hann kendi piltunum. Sýnir það starfselju hans, eigi síður en latínska orðabókin, er hann tók saman á síðustu árum sínum; hún er nú í fórum Tryggva sonar hans. Sjálfur hefur Einar rist þeim foreldrum sínum fagra minnisrún í kvæði því, er hann orti til stjúpu sinnar, Bjargar Einarsdóttur, þegar hún giftist föður hans 1885. Kvæðið er merkilegur vottur um hug Einars til foreldrahúsanna og áhrif þau, sem hann verður þar fyrir. Hann virðist hafa verið uppáhald móður sinnar, og einhversstaðar segist hann hafa átt bágt með að sofna, nema hún héldi í höndina á honum. Góður í sér virðist hann hafa verið, meyrlyndur nokkuð og íhugull, en minna fyrir það að hafa sig í hnjaski og harðbráki, sem strákum er títt. En Einari komu áhrif frá fleirum en föður og móður á æskuheimilinu. Þar mvin hann hafa kynst Sveini káta. rar kyntist hann vinnukonu, sem eigi aðeins var hundkunnug fornsögunum, heldur einnig Eddu; kunni hún kenningar og sögu þeirra upp á sína tíu fmgur. Hér heyrði hann sögurnar lesnar og ræddar, og hér gleypti fólkið við kvæðum gamalla og nýrra skálda. I Skagaíirði var skamt til sagna um Bólu- Hjálmar, enda safnaði Einar þeim frá fyrstu hendi: Guðrúm1 Hjálmarsdóttur, dóttur skáldsins.2) Og eitt af fyrstu kvæðun- um, sem Einar lét frá sér fara, var einmitt um Bólu-Hjálmar.'/ En svo snemma beygðist krókurinn til ritstarfa, að þegar a barnsaldri fór hann að setja saman sögur og vísur; brendi hann meðal annars heilt safn af sögum, þegar hann var tólf ára, strákurinn. 1) Visir 27. maí 1931. 2) Sjá Sunnanfara 1900, 8 : 0, 2324, 3940, 5253, 7576 (Sögur »f Hólu-Hjálmari). 3) 1 Skuld, 21. marz 1882.