148 ÞÆTTIR AF EINARI H. KVARAN eimrbidin Hannes Þórður Hafstein, Jón Jakobsson og Jónas Jónasson. í þriðja bekk A voru meðal annara Skúli Thoroddsen og Bertel Eðvarð Ólafur Þorleifsson, Húnvetningur eins og Einar. í þriðja bekk B voru þeir Finnur Jónsson, Geir T. Zoega og Páll J. Briem, en í fjorða bekk voru meðal annara Þórhallur Bjarnarson, Magnús Helgason og Jón Þórarinsson. Á skóla- árum Einars bættust svo í hópinn meðal annara 1876: Jón Stefánsson og Jón Þorkelsson, 1877: Ólafur Davíðsson og Hannes Þorsteinsson í annan bekk, en Klemens Jónsson, Þorsteinn Erlingsson, Valtýr Guðmundsson og Sigurður Hjör- leifsson, bróðir Einars, í fyrsta bekk. Það haust var Einar annars svo lasinn af augnveiki, að hann varð að bregða sér til Kaupmannahafnar til þess að fá bætur. Þessi listi þarf engrar skýringar við, því þótt nær alliv þessir menn séu nú komnir undir græna torfu, þá veit hvei't íslenzkt mannsbarn deili á þeim. Hitt væri merkilegt að vita, að hverju leyti vinátta eða andúð Einars til þessara manna á skólaárunum markaði afstöðu hans til þeirra síðar á æii hans. Um það er mér ókunnugt, en benda má þó á það, að auk þess sem Sigurður, bróðir Einars, er sambekkingui' Valtýs Guðmundssonar, þá eru þeir bræður og Valtýr sveit- ungar; gæti það með öðru skýrt stuðning Einars við val- týskuna síðar. Utan skólans kyntist Einar meðal annars við Matthías Jochumsson, er þá var ritstjóri Þjóðólfs. Getur Einar þess, að hjá Matthíasi hafi hann orðið var þungrar aðstöðu við hina nýju stefnu, realismann, er þá var þegar farið að brydda á í bókum, er til íslands bárust. Las Einar á síðari árum sínum í skóla Det 19. Aarlumdrede, tímarit þeirra bræðr- anna Brandes, og eitthvað af Hovedströmninger i det 19. Aar- hundredes Literatur eftir Georg Brandes.1) Vera má, að kunn- ingsskapurinn við Matlhías hafi leitt til þess, að fyrsta »saga« Einars, »Orgelið«, var birt í Pjóðólfi.2) Sú saga er að vísU ekki merkileg, en í henni er þó sagt frá átökum gamla og nýja kirkjusöngsins, ásamt bollaleggingum karlanna um það að útvega annaðhvort harmoníku(!) ellegar orgel í kirkjuna- 1) Sjá »Matthias Jochumsson, rða«, Skirnir 1921, 95: 513. 2) Þjóðólfur 1(>. okt. 1880 23. maí 1881. f