eimreidin ÞÆTTIR AF EINARI H. KVARAN 159 En nú víkur sögunni til þeirra félaga í Kaupmannahöfn. Pótt Verðandi yrði skammlíf, vildu þeir sýnilega ekki hætta að svo búnu og efndu því til nýs blaðs, er Heimdallur hét; var það mánaðarblað og hóf göngu sína um nýjár 1884. Ritstjóri var hinn merki áhugamaður Björn Bjarnarson (1853 ~~1918), síðar sýslumaður á Sauðafelli í Dölum,1) en auk þeirra Verðandi-manna skrifuðu bæði eldri menn, eins og Gisli Brynjólfsson, og yngri stúdentar, svo sem ritstjórinn, Sigurður Hjörleifsson, Valtýr Guðmundsson o. fi., í blaðið. Einar átti í blaðinu tvær sögur: »Sveinn káti« og »You are a humbug, Sir.2)« Hin síðarnefnda sver sig í ætt við »Upp °g niður« í óþolinmæði þeirri og óbeit, sem höfundur hefur a stirðnuðum kirkju-kreddum. Hann ræðst á siðinn, að taka tu bæna, eða öllu heldur á hræsni þá, sem kreddu þessari tylgdi að hans dómi. En sagan er lítils virði frá listarinnar sJÓnarmiði. Miklu betri er »Sveinn káti«.3) Þar lýsir hann karli, er hann hafði kynst í uppvexti sínum sem niður- setningi, karli sem þrátt fyrir óblíð lífskjör virðist vera harð- ^nsegður með æíi sína, enda síkátur. í þessari sögu birtast í tyrsta sinn beztu eiginleikar Einars sem sagnaskálds: samúð hans með smælingjunum og hin létta græskulausa gletni. En það sem einkum gerir Svein káta svo geðí'elda söguhetju, er að vísu hvorki fátækt hans né léttlyndi út af fyrir sig, heJdur hitt, að hann hefur þorað að lifa líf'inu í samræmi Vlo insta eðli sitt þrátt fyrir fátæktina þveröfugt við það sem Gunnlaugur stúdent í »Upp og niður« gerir. Og að Einar hafi kunnað að meta þetta þor mannsins til að fara sinna eigin ferða má eigi aðeins ráða af kvæði hans »Við aminning«, heldur einnig af mati hans á skáldinu Paul "eyse.4) Æðsta skylda mannsins, að dómi Heyses, er að yera trúr insta eðli sínu, en »af öllum þeim skáldum, sem eg hef lesið« segir Einar »veit ég engan skrifa elsku- legar og yndislegar en Paul Heyse«. Pað varð víst lítið úr próflestri Einars á Hafnarárunum, til !) Sjá Lögrélta 18. dez. 1918. 2) Heimdallur bls. 133140, 150-154; 103109. 3) Einar orti og »Eftirmæli eftir Svein káta« í Anstra 30. maí 1885. 4) Hcimdallur, bls. 5052.