eimreioin ÞAÐ, SEM HREIF 169 Já, það er satt, sagði ég loksins, eins og ég væri að átta mig eftir langa villu, ég ætlaði að skreppa bæjarleið og fór þess vegna svona snemma á fætur. Ég ætla út að Stóru- Grund með bréf í póstinn. Þetta var lygi, en ég fór samt. Eins og fyr segir, skeði þetta í hittiðfyrra. En enginn skyldi samt halda, að við hefðum þar með skilið að skiftum æfilangt. Nei, öðru nær. Unnustan mín á Suðurlandi hvarf mér gersamlega í gleymskunnar djúp, eins og sól í hafið, um leið og ég fékk löðrunginn því miður. Eftir það var ég friðlaus maður og sá ekkert annað en Rebekku, unz mér lánaðist eftir árlangt eríiði og ástundun að vmna hana til eiginorðs. En af þeirri baráttu segir ekki hér. "að er önnur saga. Um Gyðinga. Gyðingar eru nú alls 16.261.000 talsins í heiminura, þar af 344.000 á ora-Bretlandi og írlandi, samkvæmt skýrslu sem þýzki þjóðhagsfræðing- «rinn Erwin Ravitch hefur gert. em stendur eru sex sinnum ileiri Gyðingar í heiminum heldur en voru lonum fyrir 135 árum, svo ekki virðast Gyðinga-ofsóknirnar, sem svo ikið er af látið og allmikið kveður að, fa miklu áorkað um að útrýma Peim. lok júnimánaðar árið 1936 var tala Gyðinga í hverri hinna fimm "eimsálfa sem hér segir: 1 Evrópu.................. 9.736.000 - Afríku.................. 560.000 - Ameriku................. 5.031.000 - Asíu.................... 936.000 - Ástralíu................ 28.000 Samtals 16.291.000