eimreiðin SJÁLFSTÆÐI ÍSLANDS OG SAMBANDSLÖGIN 183 fyrirkomulag gæti komist á meðal allra ríkja, og að það tæki við af ofbeldinu. Þótt þetta eigi nokkuð langt í land, þá er Þó ekki til neitt, sem eins fylgir réttlætisreglu í meðferð deilumála og um leið fullu tilliti til allra sér-ástæðna aðilj- anna. Samt er »hnefinn« enn þá víða rétthærri, þegar heildir deila, félagsheildir, stéttaheildir, þjóðaheildir, þrátt fyrir alla svo nefnda menningu. (Um einstaklinga og þeirra ágreinings- taál gilda alment hinir reglulegu dómstólar). Til tals kom Það við sáttmálsgerð Dana og íslendinga 1918, að ágreinings- rnál og misklíðar yrðu lögð fyrir alþjóðadómstólinn í Haag (í Hollandi) sem er fastur gerðardómur milli ríkja, eins °g menn kannast við (m. a. af hinu fræga dansk-norska þrætumáli um Grænland fyrir fáum árum); en það þótti þá, alveg réttilega, alt of viðamikið, því að þau ein mál var lík- 'egt að upp kæmu milli þessara þjóða, Dana og íslendinga, að útkljá mætti með auðveldara (og ódýrara) hætti, sem sé eins og sambandslögin sniðu það. Og reynslan hefur líka fram að þessu á liðnum 18 árum verið sú, að ekkert ^ál, ekkert atriði, hefur í sambandsmálunum verið þann veg Urn þrætt, að ekki hafi orðið jafnað, og þannig aldrei komið "1 enn, að hinn dansk-íslenzki gerðardómur þyrfti að taka tu starfa. Enda er ekki nema gott eitt um það að segja. Liðinn tími er vitanlega reynslutími, sem ber að læra af °§> einnig notfæra sér á réttan hátt. Og næsta grein laganna "endir til þess. í henni eru örlög sambandsins sköpuð. ^S. (jr. segir alt um það, hvað verða má síðar ¦, en það er endurskoðnn og uppsögn samningsins (sambandslaganna). J) I fyrsta lagi: Eftir árslok 1940 getur Alþingi (og Ríkisþing Dana, hvort um sig) krafist þess, að gangskör sé gerð að endurskoðun laganna. *) I öðru lagi: Eftir 1943, eða 3 árum eftir endurskoðunar- kröfu, ef ekki hefur leitt til nýs samnings, má segja upp sambands-samningnum (fella lögin úr gildi), undir vissum kringumstæðum. ^ið 1. Endurskoðun. Þá á að sjálfsögðu að færa fram af vorri hálfu alt það, sem reynslan hefur sýnt, að betur mætti ara á annan veg en verið hefur. Ef gera ælti nýjan sátt- mala, þ. e. endurnýja hinn núgildandi á einn eða annan hátt,