188 ÝMISLEGT UM VERMENSKU Á 19. ÖLD eimreiðin Fiskveiðarnar voru þá, eigi síður en nú, önnur megin-tekju- lind þjóðarinnar, sem nálega hver maður jós af meira eða minna. Bú manna voru yflrleitt lítil og afrækt, því svo að segja allir karlmenn, er fermingaraldri náðu, fóru til vers að vordögum og einnig margir á vetrarvertíð. Það er viðfangsefni þessarar greinar að segja nokkuð frá lífi manna og starfi í verinu á þessu tímabili, einkum á sið- ari hluta aldarinnar eða svo langt aftur, sem elztu menn nú muna. Er það alt miðað við Vestfirði og þá einkum ísa- íjarðardjúp. Síðan á landnámsöld mun ísafjarðardjúp hafa verið meðal veiðisælustu fiskileita landsins. Um og fram yfir síðustu aldamót áttu margir bændur hér um slóðir sexæringa og minni skip, sem þeir héldu úti á vetrar- og vorvertíð og voru þá oft sjálfir formenn. Nú er ekki einungis að slíkt sé úr sögunni, heldur má það og heita hrein undantekning að finna það sveitaheimili, sem á mann við sjó, hvað þá bónda, sem gerir út. Þessu valda einkum breytt veiðitæki og veiði- aðferðir, og ef til vill nokkru þverrandi fiskignægð. I vikunni fyrir páska hófst aðal-straumur útróðrarmanna vestur að Djúpi. Aðal-verstöðvarnar á vorvertíð voru þá Bolungarvík og Hnífsdalur, en smærri veiðistöðvar voru Arnardalur, Hafnir, Ögurnes, Gullhúsár, Jökulfirðir og Aðal- vík. Á vetrarvertíð var eingöngu róið úr Bolungarvik og Hnifsdal. Til þessara staða sóttu menn af nálega öllum Vestfjörðunn að norðan, og auk þess úr Strandasýslu, Barðastrandarsýslu, Dalasýslu og jafnvel Húnavatns- og Skagafjarðarsýslum. P° var jafnan mest sókn utanhéraðsmanna úr Strandasýslu. Vai' þá mannaferð mikil og gestanauð beggja megin Steingrims- fjarðar-heiðar, í Staðardal og Langadal. Var það ekki eins- dæmi þar í dölunum, að hýstir væru 510 menn á hverjuffl bæ nótt eftir nótt um páskaleytið. Venjulega fóru vermenn í fiokkum, 1020 saman. Var það léttara og þægilegra upp á flutning á farangri, sem dregin" var á sleðum, ef þess var kostur^ en ella borinn á bakin'J- Svo var þá talið, að vart væri það hlutgengur maður í skip-