EIMREIÐIN Hvar var Hof í Hróarstungu? Eftir Guðmund Jónsson, frá Húsey. [Höfundur þcssarar greinar er Vestur-lslendingurinn Guðmundur Jóns- son, bróðir Jóns heit. Jónssonar frá Sleðbrjót. Guðmundur, sem er fæddur árið 1862, á nú heima í Vogar í Manitoba-fylki, fluttist vestur árið 1903, með tvær hendur tómar, en 8 börn í ómegð, frá Húsey á Fljótsdalshéraði, þar sem hann hafði búið i 14 ár. 1 bréfi til Eimr. skýrir hann nokkuð frá frumbýlingsárum sinum í Vesturheimi og hinum þunga róðri, sem hann varð að heyja þar, meðan börnin voru að komast upp. En hann hefur notað sínar fáu frístundir til ritstarfa og á mikið safn ýmiskonar fróðleiks í handriti, þar á meðal endurminningar frá æskuárunum um 1870'80. Peir dr. Hichard Beck og dr. Stefán Einarsson hafa kynt sér handritasafn þessa fræðaþuls, og er þar um mikinn og fjölþættan íslenzkan fróðleik að ræða. Greinin, sem hér fylgir, er aðeins litið sj'nishorn úr safni Guðmundar. Rilslj.]. Ekki verður það séð af Landnámu, hvar bærinn Hof í Hróarstungu hafi verið. Þar er þess aðeins getið, að Þórður, son Þórólfs hálma, hafi numið Tungulönd, milli Jökulsár og Lagarfljóts, fyrir utan Rangá. Þess er ekki getið, hvar hann bjó, og ekki um afkomendur hans. í Fljótsdælu er getið um Hróar Tungu-goða á bls. 8 (Útg. Sig. Kristjánssonar): »Hróarr hét maðr. Hann bjó á þeim bæ, er at Hofi hét; þat er í Fljótsdals heraði, fyrir vestan Lagarfijót ok fyrir utan Rangá, en fyrir austan Jökulsá. Þessi sveit hefur tekið viðnefni af Hróari, ok heitir Hróarstunga. Hann fékk ok viðnefni af Tungunni ok var kallaðr Tungu- goði. Barnlauss maðr var hann ok átti mergð fjár«.-------- Þar segir líka að Hróar hafi tekið til fósturs Þiðranda Geitisson frá Krossavík, og hét að gefa honum eftir sinn dag »fé ok staðfestu ok ríki«. Af því má ráða að Hróar hafi haft mannaforráð í Tungu. En hvar var Hof í Tungu? Ekkert bæjarnafn eða örnefni er nú þekt, sem bendir til þess. Það hefur að líkindum verið stórbýlisjörð, og ekki ólíklegt að hún hafi verið nærri miðri sveit. En þá er varla um aðrar jarðir að gera en Hallfreðar- staði eða Kirkjubæ, sem líklegar væru til að vera höfðingja- setur, því Bót eða Rangá hefur það varla verið, eins og síðar