28^ ILLUM HINN ILLI eimreiðin Hróbjartur Ingimundarson fangavörður kom til dyra á nær- klæðunum með ljóskolu í hendi. Hann vissi að vonum ekki, hvað- an á sig stóð veðrið, þegar sýslumaðurinn snaraðist inn, skellti hurðinni í lás að baki sér og otaði að honum nöktum korða. Snúðu þér við! Svona! Gakktu nú á undan mér inn í her- bergið þitt og náðu í lyklana að fangaklefanum!" Hróbjartur Ingimundarson hlýddi umsvifalaust; hann þekkti Ulum sýslumann og óttaðist hann meira en fjandann sjálfan. Gott! Fylgdu mér nú til Sunnefu Ólafsdóttur!" Fyrir framan klefadyrnar þreif sýslumaður í öxl fangavarðar- ins og hvíslaði í eyra hans: Réttu mér lyklana! Ég skal skilja þá eftir í anddyrinu. Farðu svo inn til þín og láttu ekki á þér bæra! Og ef þú segir nokkr- um manni sannleikann um það, sem nú fer fram, þá skaltu engu fyrir týna nema lífinu!" Hróbjartur Ingimundarson staulaðist burtu, yfirkominn af undrun og skelfingu, en sýslumaður opnaði klefahurðina og steig inn. Gott kvöld!" sagði hann stuttlega. Það var svo dimmt, að hann gat naumast greint stúlkuna, en hún sat alklædd á fleti sínu. Gott kvöld!" var svarað þýðum og rólegum rómi. Hvaða er- indi eigið þér til mín svona seint á kvöldi?" Ég ætla að hjálpa þér. Komdu!" Hann þreifaði eftir hendi hennar, reisti hana á fætur og leiddi liana út úr fangelsinu. 1 fjörunni neðan við Battaríið fann hann handhægan bát, skip- aði ungu stúlkunni upp í hann, ýtti á flot og tók til ára. Illum," sagði hún, er hann hafði róið um stund; hvað ætlið þér að gera við mig?" Rödd hennar var eilítið óstyrk. Við erum á leiðinni út í skip, sem þú átt að fara með til Dan- merkur. Þar áttu að breyta uní nafn, en annars mun ég sjá um, að þín verði ekki leitað. Ég þekki skipstjórann, honum er óhætt að treysta; þú skalt fara að hans ráðum í öllu og taka við pen- ingunum, sem hann fær þér, áður en þið skiljið. Þegar þú ert búin að læra málið og kynnast fólkinu, geturðu áreiðanlega fengið eitthvert starf við þitt hæfi. Þú skalt vera ókvíðin og ég vona, að þér gangi vel." _ _.. Þau þögðu bæði um stund; svo mælti stúlkan: