32 ISLAND 1944 eimreiðin ár á undan, og var útflutningur fiskiafurða sem hér segir (árið 1943 er tekið til samanburðar) : Saltfiskur (verkað- Ár 1944 Ár 1943 ur og óverkaður 1292 tonn 1,8 millj. kr. 2 249 tonn 3,5 millj. kr. Harðfiskur ...... 226 ' 1,1 198 0,9 ísfiskur ......... 143 705 119,2 135 531 109,8 Freðfiskur ...... 21724 47,6 13 964 31,2 Niðursoðiim fiskur 205,5 0,9 135 0,5 Lýsi ............ 6 377 22 5 564 20,2 Fiskimjöl ....... 1117 0,5 946 0,4 Sést af skýrslu þessari, að enn hefur saltfiskframleiðslan minnk- að mjög, en ís- og freðfiskssalan aukizt. Utfluttar síldarafurðir voru sem hér segir: Át 1944 Ár 1943 Saltsíld ...... 19 689 tn. 3,7 millj. kr. 31632 tn. 4,8 millj. kr. Freðsíld...... 50 lonn 0,035 15 tonn 0,015 Síldarolía .... 26 429 26,052 29 961 27,152 Síldarmjöl .... 27 040 13,115 12 630 6,129 Aðrar útfluttar sjávarafurðir voru söltuð hrogn fyrir nál. 1126 þús. kr. AFKOMA RÍKISSJÓÐS. Fjárveitinganefnd hefur í greinargerð fyrir tillögu til þingsályktunar um athugun á starfskerfi og rekstrargjöldum ríkisins gert nokkra grein fyrir útgjöldum ríkis- ins á liðnu ári. Kemur þar í ljós, að 58% eða meira en helm- ingur allra útgjalda ríkisins fer til beinna rekstursútgjalda ríkis og ríkisstofnana. Þessi rekstrarútgjöld hins opinbera fara sífellt vaxandi, og voru þau árið sem leið kr. 73,336,422. Nefndin hefur gert fróðlegan samanburð á útgjöldum ríkisins og ríkisstofnana samkvæmt fjárlögum og landsreikningi 1939 og fjárlögum fyrir árið 1945. Samkvæmt honum eru öll rekstrarútgjöld f járlaga 1945 hvorki meira né minna en 598% hærri en fjárlaganna 1939. Þá fylgir greinargerðinni harla fróðleg skrá yfir kostnað við hinar mörgu nefndir (nefndafarganið svonefnda), sem til voru uro áramótin 1943'44 í landinu. Samkvæmt skránni voru til 32 nefndir, sem allar tóku fé úr ríkissjóði beint, 9 nefndir (með 6 undirnefndum) á fjárlögum, 3 sendinefndir og 9 aðrar nefndir,