50 BÓKMÉNNTAFERILL FIMMTÍU ÁRA BIMRBIÐIN F.inar Benediktsson, skáld. Jón Magnússon, skáld. Úr fjölmennum flokki: Tveir ágætir fulltrúar tveggja síðustu skáldakynslóða, sem báðir eiga efni í Eimreiðinni, bæði í bundnu máli og óbundnu. 1 andrúmslofti þessara umrótsára hóf Eimreiðin göngu 6Ína. önnur tímarit voru þá til. Skírnir, Andvari og Tímarit Bók- menntafélagsins voru gömul og virðuleg rit og nokkuð þung. Sunnanfari var miklu liprari og léttari, flutti myndir og stuttar greinir og fróðleik. Eimreiðin átti að vera þarna mitt á milli. Hún gat flutt alllangar og alvarlegar greinir um landsins gagn og nauðsynjar, þjóðlegan fróðleik, skáldskap og fréttnæmar smá- greinir um bókmenntir. Hún varð í höndum dr. Valtýs spegill íslenzkra bókmennta og skemmtilegt bergmál ýmislegs þess, sem athyglisverðast var sagt erlendis um íslenzk fræði. Sá þáttur var góður og hefur jafnan verið haldið síðan. Skírnir birti framan af þessum 50 ára tíma, sem hér um ræðir, góð heildaryfirlit um út- lendar fréttir. Lögrétta birti síðan lengi mikið útlent efni, þ. á. m. frásagnir um íslenzk fræði erlendis. Með dagblöðunum og útvarp- inu hafa útlendar fréttir aukizt stórlega. Sumt hefur orðið óþarf- lega einhæft, sem fólki er sagt frá umheiminum, stríð og aftur stríð. Það er eitt höfuðverkefni tímarita að halda opinni útsýn fólksins til umheimsins og vekja athygli þess á nýjungunum, engu síður en að halda vakandi í senn gagnrýni þess og trú í