52 BÓKMENNTAFERILL FIMMTÍU ÁRA eimreiðiN Helgi Valtýsson, rithöfundur. Þóroddur GuSmundsson frá Sandi, rilhöfundúr. ÍFr fjölmennum flokki: Tveir kunnir rithöfundar, sem hafa birt smásögur í Eimreiðinni- Einireiðinni. Þar komu einnig yngri skáld eins og örn Arnarson, Guðmundur G. Hagalín, Halldór Laxness og Þórbergur Þórðar- son. Þar voru fræðimenn og stjórnmálamenn, Þorvaldur Thor- oddsen, Guðmundur Hannesson, Sigurður Nordal og Magnús Jóns- son. Hann var um eitt skeið ritstjóri Eimreiðarinnar, listrænn og f jölhæfur fræðimaður. Loks komu hér gamlar sögulegar lieim- ildir og frásagnir, fundabók Fjölnisfélagsins, frásagnir um Sölva Helgason, um lífið í fiskiverunum, bugleiðingar Guðmundar Hannessonar, þess margfróða og áhugasama manns, um Goða- stjórn og um það, bvernig við getum byggt upp landið. Það er margt, sem kemur í leitirnar, þegar flett er gömlum blöðum- Þaðan má rekja marga þræði út í þjóðlífið og bókmenntirnar. Það er tjón og vansæmd, að ekki skuli vera til neitt samfellt yfirlit um íslenzka bókmenntasögu síðustu áratuganna. Myndarlegar bækur og ritgerðir hafa verið skrifaðar um einstök atriði, en gloppurnar eru margar og yfirlitið vantar. Aldamótamennirnir voru sem sagt skemmtilegur, fjölbreyttui' og fjörmikill flokkur manna. Karlmennska var eitt einkenm þeirra, karlmennska og vilji til nýs lífs. Sú karlmennska birtist i bókmenntunum í kvæðum Hannesar Hafstein. Hún bafði verio