S4 BÓKMENNTAFERILL FIMMTÍU ÁRA eimreiðiN Þorsteinn Jónsson (Þórir Bergsson), rithöfundur. GuSmundur BöSvarsson, skáld, sem hóf ljóðskálds- feril sinn í Eimreiðinni 1930. l)r fjölmennum flokki: Tvö þjóðkunn nútímaskáld, sem ritað hafa í Eimreiðina. kvæðum er meira af snjöllum mannlýsingum en nokkurs staðar annars staðar í bókmenntunum. Þar eru mörg skemmtileg og fróð- leg drög að lýsingu á Islendingseðlinu, hvort sem það kemur fram hjá Ekkjunni við ána, hjá Stjána bláa, Klerknum á Mosfelli eða í höfðingjum andlegs og verklegs lífs. Það er engin tilviljun, að máttugar og lifandi mannlýsingar geymist í ljóðmælum. Kveðskapurinn er enn í dag ekki aðeins frjósamasti, heldur einnig fegursti og fullkomnasti hluti íslenzkra bókmennta. Ljóðagerðin á sér einnig lengsta listasögu, mesta þroskasögu. Hún er sérkennilegasta listgrein Islendinga. Sá, sem yrkir Ijóð á íslenzka tungu, er genginn í sálufélag við þúsund ára skáldakynslóð á Islandi og germanskan skáldanda löngu fyrir þann tíma. Hann hefur sagt sig í lög, sem hafa lifað og gilt í ljóðagerð frá því að Engilsaxar og Forn-Þjóðverjar ortu með sams konar ljóðstafasetningu og Islendingar gera enn í dag. Hvergi hefur strangt lögmál ljóðagerðarinnar verið betur og tryggara í heiöri