60 BOKMENNTAFERILL FIMMTÍU ÁRA kimreiðin rækt hefur verið við það lögð að smíða nýyrði á mörgum 6viðum þeirra nýju atvinnugreina og fræðigreina, sem upp hafa komið í landinu. Sum eru fáránleg og önnur tungutöm, eins og gengur. Tungan hefur verið í hættu af nokkrum erlendum áhrifum og virðingin fyrir henni í ræðu og riti ekki alltaf eins og æskilegt væri. Samt hafa þessi ár verið mjög merkilegur tími í málssögunni. Tungan hefur orðið auðug og mjúk og enn sýnt frjósemi sína í því, að af sinni fornu rót getur hún breitt greinar sínar um f jarlægustu og fjarskyldustu viðfangsefni nýrra tíma. Þessi 50 ár hafa verið full af fjörugu og framtakssömu lífi, margs konar breytingum, sem valdið hafa gagngerum umskiptum á kjörum og lífsháttum landsfólksins. Þær kjarabætur hafa yfir- leitt orðið til góðs. Kynstofninn hefur hækkað og stækkað að Hkamlegu atgerfi. Fátæktin hefur minnkað. Stundum hafa orðið uppgrip og auðsæld, og sum áhrif hennar vafasöm, eins og gengur. Það er gamalt mál, að margur verður af aurum api. En vaxandi fjárráð hafa miklu meira orðið til góðs. Það var eitt af einkenn- um tímabilsins, að nýtt fjármagn kom þá inn í landið og ný hagnýting þess. Og skáldin ortu því lof. Hér er ei stoð að staf- karlsins auð, nei, stórfé, hér dugar ei minna," kvað Einar Bene- diktsson. Frjósemin frá fyrra hluta tímabilsins hélzt ekki öll. Stundum kom yfir menn kjarkleysi og kæruleysi. Bókmenntir urðu fitl við fánýt efni, ljót eða leiðinleg, uppgerðar frjálslyndi og grunn- færar ádeilur. En innan um er alltaf fallegur og þróttmikill gróð- ur, og ýmislegt í bókmenntum síðara hluta tímabilsins á sjálf- sagt eftir að lifa. Sum einkenni benda nú til nýrrar aldar. Nú vantar okkur nýtt líf í bókmenntir okkar, nýjan söng, kraft og kjark, víða útsýn og glaða trú á framtíðina, frjósama og fágaða list með virðingu fyrir sjálfri sér og Iífinu.