78 ÆVINTÝRI í WARNEMÚNDE eimreiðin ég var síðastur í röðinni. ¦ Ollum hinum skilaði hann vegabréf- unum aftur, eftir að hafa skoðað þau og krotaði eða stimplaði á þau, en mínu vegabréfi stakk hann í tösku sína og hvarf með það íit úr klefanum. Mér þótti þetta þegar undarlegt og óviðfelldið og hafði orð á því við samferðafólk mitt. Mér sýndist hinn góð- látlegi, aldraði Þjóðverji, er sat á móti mér, líta til mín með- aumkunaraugum, eins og hann hugsaði: Sá á von á góðu!" Svo rann lestin af stað aftur, niður til Warnemiinde og fór nú mjög hægt. Mér leið ekki vel. Hitinn undanfarna daga hafði komið taug- unum í nokkurt ólag, og ég hafði ætíð verið nokkuð hugmynda- ríkur. Merkur íslenzkur embættismaður, búsettur í Höfn, hafði verið mér samferða frá Islandi til Danmerkur, þá um sumarið. Hann réði okkur frá því að fara til Þýzkalands, kvað þar ýms óþægindi geta steðjað að alsaklausu fólki. Við höfðum ekki látið okkur þetta að kenningu verða, og nú datt mér þetta auðvitað í hug. II. Eins og kunnugt er, gengur járnbrautarvagnaferja milli Gedser á Falster í Danmörku og Warnemiinde í Þýzkalandi. Árið 1934 voru það tvö skip, sem önnuðust þennan flutning, annað danskt og hitt þýzkt. Vegna þeirra, sem ekki hafa farið á þessum ferjum, vil ég geta þess, að svo er þessu fyrir komið, að vagnarnir renna beint út á neðri þiljur ferjanna, er leggjast með afturstafn upp í þar til gerða rauf í bryggjurnar, og standast á sporin á bryggjunum og skipunum. Aðeins einn vagninn verður eftir, farþegavagnar og flutningsvagnar eru ferjaðir. Getur maður þannig setið í sama vagnklefanum t. d. alla leið suður til Rómar frá Kaupmannahöfn. Venjulegir farþegavagnar eru þannig gerðir, að gangur er eftir hverjum vagni endilöngum, en vagninum skipt í marga klefa, bekkir tveir þvert yfir vagninn, hver á móti öðrum, en gluggi á þeirri hlið vagnsins, er frá ganginum snýr. Þykir skemmtilegast að fá sæti við gluggann, en auðvitað er hægt að vera úti í ganginum eftir vild og horfa út í þá áttina. 1 Þýzkalandi voru gluggasætin seld dálítið hærra verði en hin sætin. Svona stutta leið eins og frá Berlín til Hafnar fara flestir á ódýrasta