84 LITLI OG STÓRI eiMREIðIN ingunum á réttan hátt, meinti ég, leggja þá, sem græðzt hafa, í rétt fyrirtæki, svo þeir beri ávöxt. Það hef ég gert og gengur vel." Ja, ekki datt mér það í hug, þegar híllinn skrölti með mig inn í bæinn áðan, að ég hitti þig hér, orðinn svona stóran ja, ég meina ríkan og voldugan, hérna í henni Reykjavík. Það er víst annars margt að skoða hér fyrir mann eins og mig, sem aldrei lief komið hér áður?" O, jamm og jæja, eins og hann Hagalín segir; ýmislegt er nú athugunarvert hér. En meðal annarra orða, ertu búinn að fá þér herbergi meðan þú dvelur hér? Eg meina, hvort þú hafir tryggt þér gistingu á hóteli eða annars staðar? Illt að fá inni nema að gera ráðstafanir fyrirfram, skilurðu. Bærinn yfirfullur af fólki aðkomufólki úr öllum áttum, sjáðu til." Ég ætlaði nú eiginlega heim til Lása, þegar ég rakst á þig áðan. Hann kvað eiga heima þarna vestur við sjóinn, í ein- liverju skjóli, já', Jölduskjól held ég að bílstjórinn hafi nefnt það." O, þú ferð ekkert að halda þar til þenna stutta tíma, sem þú dvelur hér lengst vestur í ra. . ra. . . . Reynum heldur að fá herbergi á Hótel Háborg, þar kemurðu til með að kunna vel við þig." Haraldur Halldórs greip símatólið og lagði fyrir frökenina við skiptiborðið frammi að gefa sér Hótel Háborg í skyndi. Herbergið var til reiðu. En rétt í því að Bjarni frá Brekku ætlaði að standa á fætur til þess að kom'a dóti sínu og sjálfum sér fyrir á Hótel Háborg, var hurðin opnuð, og inn í einkaskrif- stofu Haraldar Halldórs forstjóra strunsaði í drottningarlegri prakt sinni hans eigin ektakvinna, frú Jakobína Halldórs. Hvernig gengur með bílinn, ertu búinn að fá hann? Þeir höfðu komið tíu til landsins í gær og margir um boðið. Þú lætur líklega ekki aðra verða á undan þér með að ná í einn.' Frúin var hraðmælt mjög. Það er allt í lagi, góða mín. Bíllinn er fenginn. Ég hafði undir- búið allt og var einmitt áðan að gera formlega pöntun í gegn um símann, rétt eftir að þessi gamli kunningi minn var nýkominn inn úr dyrunum. Gamall sveitungi; má ég kynna hann fyrir þér, væna mín?" Það var kominn einhver óróleika- og kvíðasvipur á forstjórann. Bjarni Hallsson frá Brekku. TConan mín, hún