EIjVlREIÐIN Leiklisiin. Leikfélag Reykjavlkur: Pétur Gautur. Franski sjónleikurinn Hann. Danski sjónleikurinn Álfhóll. Leikfélag Akureyrar: Brúðuheimilið. Fjalakötturinn: Allt í lagi, lagsi! Leiklistin hefur verið með fjöl- skrúðugasta móti hjá oss í vetur. Það er ekki einasta, að bæjarblöð- in hafi birt auglýsingar um leik- sýningar, sem halda átti í bænum, heldur hefur á sömu blaðsíðunni mátt lesa auglýsingar um þetta tvær og þrjár leiksýningar í ná- lægum kaupstöðum. Fjalla-Ey- vindur var sýndur í Borgarnesi, og sami leikflokkur sýndi hann einnig á Akranesi. Ráðskona Bakka- bræðra gekk sér til húðar í Góð- templarahúsinu í Hafnarfirði, en nýtt leikhús opnað, þegar leið á veturinn, í myndarlegum húsa- kynnum hins nýja ráðhúss bæjar- ins, með sýningu' á Kinnarhvols- systrum. Austan fjalls réðst fá- mennur leikflokkur í það að sýna Mann og konu á Eyrarbakka og víðar. Hér við bætist, að auglýstar hafa verið í útvarpinu f jölmargar sýningar víðs vegar um land, og er sérstaklega að minnast sýninga á Galdra-Lofti á Siglufirði og Á útleið í Vestmannaeyjum vegna þess, að kunnáttufólk frá leikfé- lagi höfuðstaðarins var fengið til að leika í sýningum þessum og leið- beina við æfingar, frú Soffía Guð- laugsdóttir á Siglufirði og hr. Ind- riði Waage í Vestmannaeyjum. Ber allt þetta vott um lifandi á- huga fyrir leiklistinni, og leikrita- valið sýnir stórum bættan smekk áhorfenda. Vitaskuld verður ekki dæmt um það hér, hvernig sýningar á þess- um leikritum hafa tekizt, þar sem undir'rituðum hefur ekki gefizt kostur á að sjá neina sýninguna. Hafa verður sögn góðra manna fyrir því, að sýningarnar hafi yfir höfuð tekizt mjög sæmilega, en benda verður á það í þessu sam- bandi, að þar sem því verður við komið gætu leikflokkar í nágrenni bæjarins grætt töluvert á því að tryggja sér umsagnir leikdómenda í f jöllesnum tímaritum. Hér í bænum hófust leiksýning- ar 24. sept. í haust sem leið með sýningu á fyrri hluta Péturs Gauts. Hafði leikurinn verið sýnd- ur 20 sinnum á fyrra leikári, en