96 LEIKLISTIN EIMREIÐIN til tekna, að Reykvíkingum gafst tækifæri til að sjá leikflokk frá Akureyri spreyta'sig á erfiðu við- fangsefni, einum Ibsens-leiknum enn, Brúðuheimilinu. Þessi leik- sýning gaf að sjálfsögðu ein sam- an enga húgmynd um leikkunnáttu þeirra norðanmanna, hún sýndi viðvaningslist á því stigi, sem helzt minnti á leikbrúður (marionettur). Að verulegu leyti verður að kenna leikstjóranum þessi mistök. Frúin hefur viljað skapa leikinn alveg eftir sínu höfði og aðalpersónuna, Nóru, alveg í sinni mynd. Síðara atriðið tókst helzt til vel, en að- eins til þess að gera sýninguna í heild enn átakanlegri mynd leik- stjórnar-agans (dressur). Það verður ekki séð, hvað vak- að hefur fyrir stjórn Leikfélags- ins með því að sýna franska sjón- leikinn Hann hér á leiksviði, og enn þá tilgangslausara að fara nú að leita uppi í leikritasafninu steindauða rómantíska þvælu eins og danska sjónleikinn Alfhól, nema þarna sé a dularfullan hátt verið að votta tveimur hernumdum þjóð- um samúð með því að auglýsa, að þessi sérstaklega franski og þessi einstaklega danski sjónleikur hafi komizt upp á leiksviðið hér. Ein- hverjir áhorfendur höfðu áreiðan- lega skilið þetta á þenna veg, hvað síðari leikinn snertir, eins og f rægt er orðið. Annars voru báðar þessar sýningar sléttar og felldar og með engum hætti sérkennilegar eða minnisstæðar. Verði ekki hjá því komizt að sýna rómantísk leikrit, þá eigum vér mörg slík og þá fyrst og fremst Nýársnóttina". Þess ber að minnast, að 6. janúar s. 1. átti Gunnþórunn Halldórs- dóttir 50 ára leikara-afmæli og stóð þá á leiksviðinu í hlutverki Karenar í Álfhól, heiðruð af sam- starfsfólki og áhorfendum. Þá er loks að geta þess, að leik- flokkur, sem kennir sig við Fjala- köttinn, gamalt og gott leikhúss- heiti í höfuðstaðnum, hefur í ár eins og undanfarin ár gert mönn- um glatt í geði með revýusýning- um. Allt í lagi, lagsi! heitir revý- an, sem var sýnd í fyrra og fram á þetta leikár. Eftir að hafa séð Leynimel 13, sem sami flokkur var - með í fyrra, varð maður fyrir nokkrum vonbrigðum, hvað leik þennan snerti. Ýmsir þættir revý- unnar voru samt með því bezta, sem hér hefur sézt af því tagi, og átti Alfreð Andrésson sinn góða þátt í því. Sjálfstæðasta leiklistar- viðburð ársins allt til þessa vil ég telja Fjalla-Eyvindar-þáttinn í leik þessum. L.S.