GUNNAR J. GUNNARSSON Mynd 1 Finnst þér mikilvægt að trúa á Guð? Skipting eftir kyni % 70 60 50 40 30 20 10 63 Mjög Nokkuð Lítið Ekkert myndarinnar er ekki ljóst en óneitanlega er freistandi að draga þá ályktun. Ef til vill kann skýringin þó einfaldlega að vera sú að stúlkur noti almennt meira slík hugtök. Á hinn bóginn má benda á að þegar kemur að notkun hugtaka sem lýsa valdi, krafti og hátign Guðs, sem gætu þá flokkast undir hin föðurlegu" einkenni, er munurinn á milli kynjanna enginn. Til viðbótar má nefna að örlítið algengara er að strákar noti hugtök sem lýsa neikvæðum tilhnningum eða afstöðu til Guðs, svo sem að hann sé ósanngjarn eða vondur. Næst mestur munur er á milli kynjanna þegar um er að ræða manngerðar- lýsingar á Guði, þ.e. Guði er lýst með mannlegt útlit eða eiginleika. Aðeins 13% stúlkna grípa til slíkra hugtaka á meðan 19% stráka nota þau. Ef þetta er skoðað í ljósi stiggreiningar vitsmunaþroskans og þar af leiðandi trúarþroskans (sbr. Piaget og Goldman) mætti draga þá ályktun að strákar séu heldur seinni að taka út þroska. Munurinn er hins vegar tiltölulega lítill þegar borin er saman notkun kynjanna á Ana-Maria Rizzuto (1979) frá Kanada ræðir í bók sinni Thc Birth of llie Living God. A vsychocmalytic study um þátt móður- og föðurímyndar í mótun guðsmyndar einstaklingsins. Hún tekur upp þráðinn frá Sigmund Freud og Erik H. Erikson og fleirum sem rannsakað hafa þróun guðsmyndarinnnr. Hún er í hópi þeirra sem gagnrýna Freud fyrir að einblína um of á samband föður og sonar í mótun guðsmyndarinnar. Rizzuto er þeirrar skoðunar eins og Erikson að guðsmynd barns mótist m.a. af reynslu barnsins af sambandi sínu við báða foreldrana en telur jafnframt að aðrir mikilvægir einstaklingar í lífi þess komi þar við sögu. Fyrstu tengsl einstaklingsins við foreldrana verða ómeðvitað fyrirmynd að öllum síðari tilfinningatengslum, einnig við Guð. Móðurímyndin og föðurímyndin þurfa í því sambandi að vera í jafnvægi þannig að guðsmyndin feli bæði í sér móðurlegan" kærleika, umhyggju og náð og föðurlegt" almætti, heilagleika og réttlæti. Rannsókn Rizzuto byggðist á klínískum" viðtölum og gerir hún grein fyrir niðurstöðum sínum og kenningum í bók sinni. 11