GUNNAR J. GUNNARSSON Þegar spurt var um bænakunnáttu kom einnig fram töluverður munur milli kynjanna. Fyrst voru þátttakendur spurðir hvort þeir kynnu bænina Faðir vor utan að. Eins og við mátti búast kvaðst mikill meirihluti gera það eða 87%. Samanburður milli kynja sýnir að fleiri stelpur en strákar segjast kunna Faðir vor eða 93% á móti 80%. Þessi munur er enn afdráttarlausari þegar spurt var um hvaða bænir aðrar börnin kunna. Þau voru beðin að skrifa niður upphafið á bænum eða bænaversum sem þau töldu sig kunna. Atta bænir voru oftast nefndar en tvær skáru sig þó úr, þ.e. Vertu Guð faðir, faðir minn og Vertu nú yfir og allt um kring og kemur það í sjálfu sér ekki á óvart. Þegar kynin eru borin saman kemur í ljós að mun fleiri stelpur en strákar nefna bænir sem þær kunna. Það vekur t.d. athygli að 77,6% þeirra sem nefna Vertu Guð faðir, faðir minn eru stúlkur en aðeins 22,4% eru strákar. Sama er uppi á teningnum varðandi Vertu nú yfir og allt um kring. 81% þeirra sem segjast kunna hana eru stelpur en 19% strákar. Hlutfall stráka sem segjast kunna einstaka bænir kemst hæst upp í þriðjung í bænunum Ó, Jesú, bróðir besti og Nú legg ég augun aftur. Þessi munur skýrist betur þegar tekið er saman annars vegar hve mörg börn tilgreina bænir sem þau kunna og hins vegar hve margar bænir þau nefna. Þá kemur í ljós að það eru 584 börn eða rúmur helmingur barnanna sem tilgreinir einhverjar bænir, eina eða fleiri. Af þeim er 421 stelpa en aðeins 163 strákar. 52% strákanna nefna aðeins eina bæn en tæpur þriðjungur stelpnanna nefnir eina bæn og annar þriðjungur tvær bænir og um fimmtungur þrjár. Strákar virðast því samkvæmt þessu kunna mun minna af bænum en stelpur. Á Mynd 3 sést hve margir nefna eina til fjórar bænir, greint eftir kyni. Mynd 3 Kanntu aðrar bænir utan að? Fjöldi tilgreindra bæna. Skipting eftir kyni 140 120 1 100 80 E~ 60 40 20 130 133 83 74 19 m Kyn I | Stelpa ¦1 Strákur 13