GUNNAR J. GUNNARSSON Mynd4 Hefurðu tekið þátt í einhverju kristilegu æskulýðsstarfi? Skipting eftir kyni % 50 40 30 20 10 Strákur lingu starfi KRJM/KFUK Annað KlrkjUStarfl Kirkjnn og KFUM/K legu- og kristilegu æskulýðsstarfi sést að minnihluti barna og unglinga á Islandi er virkur þátttakandi í slíku starfi. Stelpur eru þó töluvert virkari en strákar. Dauði, sorg og vanlíðan Nokkrar spurninganna sem lagðar voru fyrir börnin höfðu það að markmiði að kanna tilfinningar þeirra gagnvart dauða og sorg og viðbrögð þeirra við missi og vanlíðan. Spurt var um hvort þau hugsuðu mikið um dauðann, um hugmyndir þeirra um hvað tæki við eftir dauðann, hvort þau væru hrædd við hann ásamt því að kanna hvernig þau brygðust við sorg og vanlíðan. Fyrst var spurt: Hugsarðu oft um dauðann? I svörum er munurinn á milli kynj- anna nokkur. Stelpur virðast hugsa meira um dauðann er strákar. Þannig merkja 25% þeirra við oft á móti 18,8% stráka og 46,5% stelpna merkja við stundum á móti 38,3% stráka. Þar af leiðir að hærra hlutfall stráka merkir við sjaldan og aldrei. Þannig hugsa tæp 43% stráka sjaldan eða aldrei um dauðann á móti rúmum 28% stelpna (sjá Mynd 5). Enn fremur kom í ljós að heldur fleiri stelpur en strákar eru þeirrar skoðunar að við förum til Guðs þegar við deyjum en strákarnir eru frekar á því að við hættum að vera til eða fæðumst aftur á jörðinni. Stelpur eru einnig hræddari við dauðann en strákar. Mun fleiri strákar segjast ekki óttast dauðann eða 51,5% á móti 32,2% stelpna. Hér virðist karlmennskuímyndin" skila sér í óttaleysi gagnvart dauðan- um. Á sama hátt eru það fleiri stelpur sem segjast vera hræddar við dauðann eða 33,2% á móti 18,8% stráka (Mynd 6). 15