GUNNAR J. GUNNARSSON Síðasta spurningin tengd sorg og dauða var: Hvað finnst þér best að gera þegar þú ert sorgmædd(ur) eða líður illa? Börnin áttu að svara með eigin orðum og fylla út í þar til gerðar línur. Svörin voru síðan flokkuð í átta flokka. Flokkarnir koma fram á Töflu 1. Tafla 1 Hvað finnst þér best að gera þegar þú ert sorgmædd(ur) eða líður illa? Svör allra þátttakenda og skipt eftir kyni Flokkur Stelpur 32,7% (N=186) Strákar Allir 20,5% (N=109) 26,8% (N=295) 1. Biðja, hugsa um Guð 2. Fara að sofa, leggja sig 7,7% (N=44) 14,3% (N=76) 10,9% (N=120) 3. Vera einn/ein inni í herbergi 6,3% (N=36) 5,3% (N=28) 5,8% (N=64) 4. Hugsa um e-ð fallegt, gott 14,8% (N=84) 9,2% (N=49) 12,1% (N=133) 5. Gera e-ð skemmtilegt 13,0% (N=74) 17,1% (N=91) 15,0% (N=165) 6. Gráta 9,7% (N=55) 2,3% (N=12) 6,1% (N=67) 7. Tala við einhvern 20,7% (N=118) 9,0% (N=48) 15,1% (N=166) 8. Annað 2,3% (N=13) 5,6% (N=30) 3,9% (N=43) 9. Svara ekki 4,9% (N=28) 7,9% (N=42) 6,4% (N=70) Eins og sjá má af töflunni sýnir stærsti flokkurinn trúarleg viðbrögð við sorg eða vanlíðan, en rúmur fjórðungur gaf slík svör. Svörin voru á þá lund að biðja bænir, tala við Guð, hugsa um hann eða til hans og jafnvel skamma hann, lesa í Biblíunni og fara í kirkju. Stelpur eru hér í töluverðum meirihluta en þær eru 63% þeirra sem fylla þennan flokk en 32,7% stelpnanna lýsa trúarlegum viðbrögðum við sorg og vanlíðan á móti 20,5% stráka. Næst algengust eru svör þar sem talið er best að tala við einhvern, foreldra eða aðra ættingja, vini o.s.frv., en 15,1% svöruðu á þann veg. Hér eru stelpur einnig í miklum meirihluta en þær voru 71% þeirra sem fylltu 17