GUNNAR J. GUNNARSSON Mynd 7 Líkan Evenshaugs og Hallens MENNING FÉLAGAR / ^ -1-- \. V> 5/ öV>^<^>A^ WP\ BARNIÐ )«--?-----»|Op| Evenshaug og Hallen 1983:í mótunaraðilar eru einnig mikilvægir, s.s. leikskóli, skóli, kirkja, ýmiss konar félags- starfsemi, fjölmiðlar, jafnaldrar og önnur tengsl við fullorðna. Allir þessir aðilar eru í ákveðnu menningar- og félagslegu samhengi sem hefur áhrif á þá (sbr. ysta hring- inn). Örvarnar sýna að allir þeir þættir sem þar eru settir fram eru í gagnvirku sam- bandi. Barnið er þannig ekki óvirkur móttakandi áhrifa heldur bregst það við, velur úr og hefur áhrif á umhverfi sitt, meðal annars fjölskylduna og uppalendurna. Fjöl- skyldan er heldur ekki einangruð. Hún verður bæði fyrir áhrifum frá og hefur áhrif á leikskóla, skóla, kirkju, félagsstarf, fjölmiðla, ættingja og vini svo dæmi séu tekin. Þegar við skoðum trúarlega uppeldis- og félagsmótun út frá líkani þeirra Evens- haugs og Hallens ber fyrst að hafa í huga að sú mótun er bæði margslungin og flókin. Hún á sér stað í tilteknu félags- og menningarlegu umhverfi. Sá trúarlegi skilningur og atferli sem fjölskyldan, leikskólinn, skólinn, fjölmiðlarnir o.fl. miðla mótast af þeim trúarbrögðum og lífsviðhorfum sem eru ráðandi í menningunni. Evenshaug og Hallen serja fjölskylduna í þungamiðju í sínu líkani. Augljóst er að hlutverk hennar hlýtur að vera í sérstöðu því þar fer uppeldið fyrst og fremst fram og hjá foreldrunum liggur frumskyldan og rétturinn varðandi uppeldið. Þetta er í samræmi við eitt af því sem kennimenn á sviði trúaruppeldisfræði og trúarlífssálarfræði hafa lagt áherslu á síðustu áratugi, þ.e. gildi eða mikilvægi trúar- legrar uppeldismótunar allt frá fyrstu bernsku. Þar gegnir fjölskyldan lykilhlut- verki. Trúarleg viðhorf og atferli foreldranna verða barninu fyrirmynd og tengilið- 19