ERU STELPUR TRUAÐRI EN STRAKAR? þá að tilgreina hvar. Niðurstöður sýna að kirkja og skóli koma langmest við sögu í þessu efni, en rúm 80% merkja við annað hvort auk nokkurra sem kusu að tilgreina hvort tveggja. Samanburður á áhrifum skóla og kirkju er því áhugaverður. Þau sem merktu við annað" tilgreindu einkum bæði skóla og kirkju, sumar- búðir og KFUM/KFUK. Hér vekur athygli veik staða heimilisins þegar horft er til fræðslu um kristna trú en aðeins rúm 12% merkja við það. Það þarf þó ekki að þýða að heimilin sinni trúarlegri uppeldismótun illa því ekki er víst að börnin tengi t.d. það að hafa lært bænir heima hjá sér, eða að lesið hafi verið fyrir þau kristilegt efni þegar þau voru lítil, við það hvar þau hafa lært mest um kristna trú. Hér má minna á að rúm 66% barnanna tilgreindu móður þegar spurt var hver hefði kennt þeim flestar bænir og rúm 45% töldu að lesið hefði verið fyrir þau kristilegt efni áður en þau urðu læs. í samanburði milli kynja kemur í ljós að kirkjan hefur vinninginn umfram skól- ann hjá stelpunum en hjá strákunum er þessu öfugt farið (Mynd 11). Samræmist það þeirri niðurstöðu að þátttaka stelpna í kirkjustarfi er mun meiri en stráka (Mynd 4). Mynd 11 Hvar hefurðu lært mest um kristna trú? Skipting eftir kyni 40 30 20 J II) íkirkju Iskóla Heima Annarsstaðar Til að sjá ólík mótunaráhrif heimilis, kirkju og skóla er áhugavert að skoða hvort það hefur einhver áhrif á trúarlega afstöðu og iðkun barnanna hvar þau telja sig hafa lært mest um kristna trú. í því skyni voru keyrð saman svörin við spurning- unni um hvar börnin hafa lært mest um kristna trú og svörin við spumingunum Finnst þér mikilvægt að trúa á Guð?" (sbr. Mynd 1) og Biður þú bænir? (sbr. 26