ÞATTUR STARFSFOLKS LEIKSKOLA I HLUTVERKALE I K BARNA AÐFERD Athuganir Til að kanna hvernig starfsfólk tekur þátt í, hefur áhrif á og örvar leik barnanna voru gerðar athuganir og myndbandsupptökur í 30 leikskólum á höfuðborgar- svæðinu. Leikskólarnir voru valdir með handahófsúrtaki og voru börnin sem fylgst var með 3-6 ára. Af þeim 30 fullorðnu sem tóku þátt í rannsókninni voru 22 leik- skólakennarar. Hlurverkaleikur barnanna á afmörkuðum hlutverkaleiksvæðum var athugaður. Þrjátíu mínútur af leiktímabili barnanna voru teknar upp á myndband, tíu mínútur í byrjun leiks, tíu mínútur af miðju leiktímabils og tíu mínútur í lokin. Þegar böndin voru skoðuð var notað sérstakt form sem skipt var í 90 tuttugu sek- úndna bil. Hegðun starfsfólksins var skráð á tuttugu sekúndna fresti. Annars vegar var skoðað hvað hinir fullorðnu voru að gera þegar börnin voru að leik á hlutverkaleiksvæðunum og var það flokkað niður á eftirfarandi hátt: - var fjarverandi - var viðstaddur, gerir eítthvað annað - fylgist með óformlega - gerir athuganir og skráir - hefur afskipti (íhlutun). Hins vegar var skoðað hvernig þeir fullorðnu höfðu afskipti og tóku þátt í leiknum. Flokkun Christis (1982) á afskiptum fullorðinna í leik var höfð til hliðsjónar og eftir- farandi flokkar voru búnir til: 1) Afskipti utan frá, óháð þema leiksins. (Hinn fullorðni stendur utan við leik- inn og hefur afskípti utan þema leiksins.) 2) Afskipti utan frá, innan þema leiksins. (Hinn fullorðni stendur utan við leik- inn og hefur afskipti innan þema leiksins.) 3) Afskipti innan frá (þátttaka). Þátttaka í leiknum var flokkuð í fernt: - Samhliða leikur. - Samleikur I. (Hinum fullorðna var þá boðið að taka þátt í leiknum sem barnið skipuleggur og hefur stjórn á.) - Samleikur II. (Hinn fullorðni stígur inn í leikinn sem barnið skipuleggur og hefur stjórn á.) - Samleikur III. (Hinn fullorðni tekur þátt í og hefur stjórn á leiknum.) 4) Leikþjálfun. Upptökurnar voru skráðar og greindar af rannsakanda og aðstoðarmanni. Óháður athugandi skráði einnig 150 mínútur af upptökunum til að meta áreiðanleika skrán- ingarinnar. Spurningakönnun Til að kanna skoðanir starfsfólks á leiknum og viðhorf þeirra til þess hver áhrif starfsfólks eigi að vera á leik barna var lagður spurningalisti fyrir 700 starfsmenn leikskóla á höfuðborgarsvæðinu. Spurningakönnunin var gerð í leikskólunum. Rannsakandinn fór á fyrirfram ákveðnum tíma og beið meðan þátttakendur svör- 38