JÓHANNA EINARSDÓTTIR uðu. Þetta var gert til að tryggja meiri svörun og til að koma í veg fyrir að þátttak- endur bæru sig saman. Ef þátttakandi var fjarverandi eða fólk þurfti meiri tíma til að svara voru spurningalistarnir skildir eftir og þeir síðan sendir með pósti. Svörin voru nafnlaus og ekki merkt viðkomandi leikskóla. Svörun varð 76% og voru um 40% svarenda leikskólakennarar. Spurningarnar í könnuninni voru flestar lokaðar. Á spurningalistanum voru einnig sjö fullyrðingar um leik, sem þátttakendur voru beðnir að taka afstöðu til með því að merkja á matskvarða frá 1-5. Mestur hluti könnunarinnar fól í sér spurningar um leik, þátttöku fullorðinna og áhrif fullorðinna á leik. Þátttakendur voru spurðir um hugmyndir sínar og skoðun á þátttöku fullorðinna í hlutverka- leiknum, þeirra eigin áhrif og íhlutun í leik barna. NIÐURSTÖÐUR Athuganir Af 30 leikskóladeildum sem athugaðar voru var hlutverkaleiksvæðið í sérherbergi í 25 þeirra. 111 af þessum leikskólum léku börnin sér oftast ein í þessum herbergjum, en í 14 þeirra var starfsmaður í herberginu með börnunum. I fimm leikskólum var hlutverkaleikkrókur hluti af stærra herbergi. Mynd 1 sýnir hvað starfsfólkið var að gera þegar börnin voru í hlutverkaleik. Um það bil 38% tímans sem fylgst var með voru bömin ein að leika sér, þ.e. enginn fullorðinn var í sama herbergi. Mynd 1 Hegðun starfsfólksins þegar börnin voru að leik 782 488 360 I I 44 1) Fjarverandi - 2) Viðstatt, gerir eitthvað annað - 3) Fylgist með óformlega 4) Atluigar og skráir - 5) Hefur afskipti 39